Forgangsröð í heilbrigðiskerfinu.
Virðulegur forseti. Þetta var mjög skemmtilegt. Þetta er fyrsta utandagskrárumræðan sem sú er hér stendur tekur þátt í sem heilbrigðisráðherra og hér er algjör samhljómur milli stjórnmálaflokkanna um hvert beri að stefna, þannig að ég fagna því mjög að við skulum hafa fengið að heyra það og ég tel ástæðu til að þakka nefndinni sérstaklega fyrir að hafa hvatt til þessarar umræðu því nú er stefnan algjörlega skýr. Það eru allir flokkar sammála um að við eigum ekki að fara í tvöfalt kerfi, við eigum ekki að fara í eitt kerfi fyrir hina ríku og annað fyrir aðra. Það eru allir sammála um það. Við eigum ekki að stefna inn í tvöfalt bandarískt kerfi, því er hafnað.
Það sem við viljum og samstaða er um er að kerfið sé réttlátt, að það sé byggt á samábyrgð þegnanna og að mestu leyti kostað af skattfé. Ég heyri að allir flokkar eru fylgjandi þessari stefnu og ég fagna því sérstaklega. Það eina sem eftir er núna er að jarða þessa hugmynd um tvöfalt kerfi endanlega og segja amen eftir efninu.