132. löggjafarþing — 93. fundur,  27. mars 2006.

Stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins.

392. mál
[15:55]
Hlusta

Frsm. iðnn. (Birkir Jón Jónsson) (F):

Hæstv. forseti. Eins og hér hefur komið fram er það einlægur vilji þeirra sem starfa við þetta fyrirtæki og hafa gert um áratugaskeið að farið verði í þá breytingu sem hér er lögð til. Hv. þingmenn Vinstri grænna virðast hafa miklu meiri þekkingu á rekstri Rafmagnsveitna ríkisins en umræddir starfsmenn sem hafa starfað þar í áratugi.

Þetta er einlæg ósk starfsmanna sem vilja vinna í þágu sinna neytenda með það að markmiði að lækka raforkuverð og auka skilvirkni í rekstri síns fyrirtækis. Það eru göfug og góð markmið sem ég styð af heilum hug. Nú þekki ég ekki hugmyndafræði Frjálslyndra í þessu sambandi, hún mun væntanlega koma í ljós, en mér sýnist að Vinstri grænir séu einangraðir í sinni afstöðu gegn starfsmannafélagi og forustumönnum í þessu fyrirtæki. (KolH: Hvernig lækkar hf. raforkuverðið?)