132. löggjafarþing — 94. fundur,  28. mars 2006.

Álit Samkeppniseftirlits um taxta leigubifreiða.

[13:34]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegur forseti. Eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson veit er það ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem hann gerði að umtalsefni. Sá þáttur málsins heyrir að sjálfsögðu ekki undir samgönguráðuneytið. Hins vegar heyra málefni leigubíla og verkefni leigubílstjóra undir ráðuneytið.

Þjónusta leigubílastöðvanna og leigubílstjóranna er mjög mikilvæg í samfélagi okkar. Það á bæði við um almenna borgara og ferðamenn. Þjónusta leigubílanna á þessu svæði skiptir geysilega miklu máli, ekki síst vegna þess að almenningssamgöngur, eins og hv. þingmenn þekkja, eru takmarkaðar og leigubílarnir þess vegna mjög mikið notaðir og mjög mikilvægir. Sú regla hefur verið sett upp hjá okkur að það er takmarkaður fjöldi leyfa fyrir þá sem sinna leiguakstri. Hér á höfuðborgarsvæðinu hefur í langan tíma verið ákveðinn fjöldi og síðan tók ég ákvörðun um að stækka þetta svæði þannig að höfuðborgarsvæðið allt og Suðurnesin væru eitt atvinnu- og takmörkunarsvæði.

Það hefur verið afstaða samgönguráðuneytisins að ekki væri skynsamlegt, við þessar aðstæður þar sem leyfin eru takmörkuð, að afnema þetta hámarksgjald. Samgönguráðuneytið hefur gert Samkeppniseftirlitinu það ljóst hver afstaða ráðuneytisins er þannig að ég hef talað alveg skýrt í þessu. Ég tel að þetta sé ekki skynsamleg ákvörðun um þessar mundir.