132. löggjafarþing — 94. fundur,  28. mars 2006.

Álit Samkeppniseftirlits um taxta leigubifreiða.

[13:47]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegur forseti. Þessi umræða er um margt athyglisverð. En það fer hins vegar ekkert á milli mála að þegar við breyttum lögum árið 2001 varð það niðurstaðan að halda áfram með takmörkunarsvæði á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og á Suðurnesjum hvað varðar úthlutun leyfa fyrir leiguakstur. Það varð niðurstaðan þá. Allt hefur sinn tíma. Það kann vel að vera að hv. þm. Jóhann Ársælsson verði sannspár um að auka eigi frjálsræði í þessu en það var nokkuð góð sátt um það í þinginu að gera ekki breytingar hvað þetta varðar. Það var í því ljósi og það er á þeim grundvelli sem afstaða mín hefur verið sú að gera ekki breytingar á því að halda úti hámarkstaxta. Það eru hin afdráttarlausu pólitísku skilaboð sem hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson bað um að kæmu frá mér og ég hef gert Samkeppniseftirlitinu grein fyrir frá samgönguráðuneytinu að við teljum að við þær aðstæður sem við búum við í dag sé ekki skynsamlegt að gera slíkar breytingar.

Ég hlýt að gera ráð fyrir því að eitthvað heyrist frá Neytendasamtökum og öðrum en ég tel afar mikilvægt að við göngum ekki til þeirra breytinga sem Samkeppniseftirlitið er að taka ákvörðun um, beint í kjölfar þess að við gerðum þessa heilmiklu breytingu að sameina takmörkunarsvæðin á Suðurnesjum og í Reykjavík. Það voru töluverðar deilur um það og ég tel að þetta væri ekki gott innlegg í það mál að svo komnu. Þess vegna hef ég tekið þessa afstöðu alveg hreina og tæra að ég tel að þetta sé ekki til bóta.