Upplýsingaréttur um umhverfismál.
Virðulegi forseti. Ég ákvað að kveðja mér hljóðs vegna fyrirvara sem ég hef sett við þetta mál í nefndarálitinu. Við erum að lögfesta tilskipun frá Evrópusambandinu, nr. 4/2003, þar sem markmiðið er að innleiða fyrstu stoð Árósasamningsins í löggjöf Evrópubandalagsins en eins og komið hefur fram hér lýtur sá hluti að almennum aðgangi að upplýsingum um umhverfismál. Markmið frumvarpsins er að tryggja almenningi aðgang að upplýsingum um umhverfismál sem stjórnvöld hafa yfir að ráða eða geymdar eru fyrir þeirra hönd til að stuðla að sterkari vitund um málefni á umhverfissviði, frjálsum skoðanaskiptum og aukinni þátttöku almennings í töku ákvarðana um umhverfismál.
Eins og komið hefur fram í umræðunni skrifum við fjórir þingmenn í umhverfisnefnd undir þetta nefndarálit með fyrirvara vegna þess að við teljum ástæðu til að innleiða hinar tvær stoðir Árósasamningsins í íslenskan rétt og hefur hv. þm. Mörður Árnason gert góða grein fyrir þessum fyrirvara okkar í umræðunni hér á undan. Ég tek líka undir með hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur, sem einnig er með þennan fyrirvara við málið, en hún hefur hvatt til þess að við lögfestum þær tvær stoðir Árósasamningsins sem á eftir að lögfesta. Það er ekki með þessu frumvarpi, það er sem sagt aðeins ein stoðin sem við erum að lögfesta.
Ég, virðulegi forseti, vildi aðeins gera grein fyrir þessum fyrirvara sem ég set við þetta mál en að öðru leyti styðjum við þær breytingartillögur sem koma fram í sérstöku þingskjali við málið og ég vonast til að við eigum eftir að innleiða hinar tvær stoðir Árósasamningsins sem fyrst.