132. löggjafarþing — 95. fundur,  29. mars 2006.

Endurnýjun sæstrengs.

509. mál
[12:09]
Hlusta

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. 7. þm. Suðurk., Björgvini G. Sigurðssyni, kærlega fyrir að taka þetta mál hér upp enda mikilvægt umfjöllunarefni. Samband landsins við útlönd og það öryggi sem á því er hefur sannarlega ekki verið viðunandi, eins og hv. þingmaður benti rækilega á og algerlega óviðunandi fyrir íslenskt samfélag að eiga það undir dýralífi eða vinnutækjum á Skotlandi hvort landið er í sambandi eða ekki og ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að láta þennan starfshóp skila af sér vel og hratt vegna þess að þó að fjarskiptafyrirtækin sjái kannski ekki fulla arðsemi í því að auka hér öryggi þá er það mál sem varðar þjóðina alla og ríkið kann að þurfa að koma að, m.a. líka til að skapa starfsaðstöðu fyrir ýmiss konar iðnað og þjónustu sem byggir á því að hægt sé að treysta fullkomlega á sambandið við útlönd.