132. löggjafarþing — 97. fundur,  30. mars 2006.

Verðbréfaviðskipti.

655. mál
[16:43]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verðbréfaviðskipti, sem er 655. mál þingsins á þskj. 962.

Með frumvarpi þessu er gerð tillaga að breytingum á tilteknum þáttum laga um verðbréfaviðskipti er lúta að útboðs- og skráningarlýsingum, hér eftir nefndar lýsingar þegar átt er við hvort tveggja. Frumvarpið er hluti af innleiðingarferli vegna tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um útboðs- og skráningarlýsingar þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða skráð á skipulegan verðbréfamarkað.

Í ársbyrjun 2004 var skipuð nefnd til að vinna að innleiðingu framangreindrar tilskipunar og reglugerðar. Hefur hluti hennar þegar verið innleiddur í íslenskan rétt með breytingum á lögum um verðbréfaviðskipti sem samþykktar voru síðastliðið vor. Nefndin hefur að undanförnu unnið að gerð reglugerða um nánari framkvæmd laganna, í samræmi við ákvæði 73. gr. þeirra. Í þeirri vinnu hefur komið í ljós að nauðsynlegt er að gera nokkrar minni háttar breytingar á nokkrum greinum laganna og eru tillögur að þeim breytingum lagðar fram í þessu frumvarpi.

Með frumvarpi þessu er gerð tillaga að breytingum á tilteknum þáttum laga um verðbréfaviðskipti, er lúta að útboðs- og skráningarlýsingum. Frumvarpið er hluti af innleiðingarferli vegna tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um útboðs- og skráningarlýsingar þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða skráð á skipulegan verðbréfamarkað.

Í ársbyrjun 2004 var skipuð nefnd til að vinna að innleiðingu framangreindrar tilskipunar og hefur hluti hennar þegar verið innleiddur í íslenskan rétt með breytingum á lögum um verðbréfaviðskipti sem samþykktar voru sl. vor.

Nefndin vinnur nú að gerð reglugerða um nánari framkvæmd laganna, í samræmi við ákvæði 73. gr. þeirra. Við þá vinnu hefur komið í ljós að nauðsynlegt er að gera minni háttar breytingar á nokkrum greinum laganna og eru tillögur að þeim breytingum í þessu frumvarpi.

Helstu breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru eftirfarandi:

Lagðar eru til breytingar á orðskýringum í 2. gr. laganna. Skilgreiningar á fagfjárfestum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem upphaflega átti að útfæra í reglugerð. Við nánari skoðun er lagt til í staðinn að viðkomandi orðskýringar verði í lögunum.

Lagðar eru til nokkrar breytingar á orðalagi sem ætlað er að gera orðalag viðkomandi greina enn skýrara.

Leiðréttar eru tilvísanir í samræmi við breytingar sem urðu á lögunum þegar nýr IV. kafli tók gildi 1. janúar síðastliðinn auk þess sem leiðréttar eru nokkrar villur sem m.a. eru til komnar vegna villna í fyrrnefndri tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins.

Hæstv. forseti. Ég mælist til þess að þessu frumvarpi verði vísað til 2. umr. og hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.