Yfirtaka Íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar.
Hæstv. forseti. Svo að það sé skýrt þá fagna ég því að sá dagur skuli vera að koma að við sjáum fyrir endann á hersetu á Íslandi. Það er hins vegar ástæða til að láta það koma fram að Samfylkingin hefur lýst því yfir að hún vilji skoða þetta mál á grundvelli Atlantshafsbandalagsins og á grundvelli samstarfs Evrópuþjóða líka og að ekki eigi að loka neinum dyrum, hvorki gagnvart Bandaríkjamönnum né öðrum, á þessari stundu heldur skoða þetta mál í heildina. Auðvitað þurfum við samstarf um öryggi á hafinu í kringum landið, við þurfum samstarf um björgunarmál, við þurfum að hafa samstarf við þjóðir sem væru tilbúnar til að koma til liðs við okkur ef viðsjár aukast í heiminum. Það er niðurstaða okkar, við höfum ekki lokað neinum dyrum og viljum skoða málin vel.
Ég geri ráð fyrir að við lokum ekki heldur á hugmyndir sem koma frá Bandaríkjamönnum um að standa með einhverjum hætti við þennan varnarsamning en hef fyrirvara við það þangað til við sjáum það. Ég hef tekið mjög vel eftir því að Bandaríkjamenn eru búnir að draga tjöldin frá, þeir eru búnir að taka stóru kröfurnar af kröfuspjaldi Íslendinga í þessu máli og eftir sitja menn og tala um eitthvað annað sem ekki hefur komið fram hvernig á að framkvæma. Þangað til bíðum við bara og sjáum til. Það er nógur tími til að leysa þessi mál. Það sem þarf að flýta sér að leysa eru björgunarmálin og öryggismálin.