Yfirtaka Íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar.
Frú forseti. Ríkisstjórn Íslands réðst aldrei í það verkefni að gera þá greiningu á öryggisþörfum Íslendinga sem hún lagði þó sjálf til í skýrslunni sem kom síðla árs 1999. Þeirri skýrslu var bara stungið undir stól og þessi greining á þörfum okkar var aldrei gerð. Þess vegna höfðu íslensku samninganefndarmennirnir og íslenski utanríkisráðherrann það aldrei á hreinu hvað það var sem þeir vildu fá út úr samningaviðræðunum. Þeir vissu ekki hvers þeir þörfnuðust vegna þess að þeir höfðu ekki skoðað það og þeim mönnum sem ekki vita hvað þeir vilja gengur yfirleitt illa að semja. Það kom auðvitað skýrt í ljós í þessum niðurstöðum sem enduðu með algjörri brotlendingu fyrir utanríkisstefnu Sjálfstæðisflokksins.
Þessi tillaga sem hér er til umræðu er merkileg að því leyti til að það er gert ráð fyrir því í henni að Íslendingar taki yfir svæðið sem Keflavíkurherstöðin hefur haft. Árni Sigfússon bæjarstjóri í Keflavík er því sammála. En það má ráða af orðum hv. þm. Birgis Ármannssonar að það sé smám saman á síðustu dögum að verða stefna Sjálfstæðisflokksins að láta Bandaríkjamenn hafa stöðina áfram og landið mannlausa eða mannfáa þannig að þeir gætu þegar þeir vildu komið hingað aftur með þann liðsafla sem þeir vilja. Með öðrum orðum, frú forseti, þeir vilja fara núna, skilja stöðina eftir hjá okkur en svo ef þeim hugnast svo vilja þeir geta komið aftur. Þetta virðist vera stefna Sjálfstæðisflokksins.
Hið napurlega sem sýnir þá kaldhæðni sem sagan býr stundum til úr framvindu atburðanna er svo þetta: Ísland og sérstaklega forusta Sjálfstæðisflokksins fylgdi innrásinni í Írak og það er einmitt hernaðarþörfin í Írak sem gerir það að verkum (Forseti hringir.) að nú er verið að draga þetta lið af Íslandi.