4. fsp.
Virðulegi forseti. Hverjir erfa landið? spurði hæstv. landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson á dögunum í viðtali í Bændablaðinu. Hann átti þar m.a. við mikil uppkaup efnamanna og stóreignamanna á jörðum. Margvísleg dæmi eru um að stóreignamenn safni jörðum og jarðaverð hefur hækkað gífurlega á liðnum árum, um 100% á fimm árum. Aukning seldra jarða er 50%, sem vissulega er að mörgu leyti jákvæð og gleðileg þróun en vekur að sjálfsögðu upp áleitnar spurningar. Blóðug þróun, segja margir bændur af því að þegar efnamenn kaupa upp jarðir þá geta bændur ekki keppt við þá en um leið er ánægjulegt að bændur geti leyst út verðmæti jarða sinna ef þeir kjósa að gera svo.
Tvöföld búseta og fjármagn í sveitirnar. Það þarf að samræma sjónarmiðin. Hæstv. landbúnaðarráðherra sagði í áðurnefndu viðtali við Bændablaðið, þau tíðindi má túlka út úr þeim orðum hans að hann útiloki ekki breytingu á jarðalögum sem taki á þessum málum, með leyfi forseta:
„Ég útiloka þó alls ekki að sú staða kunni að koma upp að gera verði breytingar á jarðalögum ef viðskiptafrelsi fer að bitna á mikilvægum gildum.“
Þar á hæstv. landbúnaðarráðherra væntanlega við einhvers konar skilyrði fyrir þá sem kaupa jarðirnar. Hann vísar í dönsku lögin en þar er ábúðarskylda á jörðum stærri en 30 hektara eða stærri en hefðbundnar frístundajarðir. Því vildi ég spyrja hæstv. landbúnaðarráðherra hvort hann sé að endurskoða jarðalögin út frá þessu. Kæmi til greina að koma í veg fyrir jarðasöfnun efnamanna á kostnað þess að hefðbundnir bændur geti stundað búskap og keppt við þá um jarðirnar? Jarðaverð á hefðbundnum jörðum er oft komið vel yfir 100 millj. kr. Margir þekktir efnamenn í samfélaginu hafa keypt jarðir, 5–10 eða 15 jarðir. Um það þekkjast dæmi um og er þar um að ræða mjög vinsæla (Forseti hringir.) fjárfestingu fyrir þolinmótt fjármagn.