132. löggjafarþing — 98. fundur,  3. apr. 2006.

Opinber gjöld af bensíni og olíu.

[15:37]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Frú forseti. Eins og hv. þingmaður væntanlega veit er í gildi tímabundin lækkun á olíugjaldi. Væri um frekari lækkanir að ræða á því gjaldi og reyndar á bensíngjaldi líka væri óneitanlega um skattalækkun að ræða og minni tekjur fyrir ríkissjóð. Það mundi líka hafa, að mati flestra hagfræðinga, sams konar þensluáhrif og aðrar slíkar lækkanir. Ég held að það væri afskaplega varhugavert að fara langt í þessa veru, sérstaklega á þeim tíma sem Seðlabankinn spáir aukinni verðbólgu og hækkar stýrivexti til að glíma við verðbólguna.

Ég held að horfa þurfi á þetta í þessu samhengi þótt vissulega geti ég tekið undir að það er óþægilegt þegar verð á olíu og bensíni hækkar, hvort sem er vegna gengisbreytinga eða hækkana í útlöndum.

Varðandi virðisaukaskatt á viðskipti Landhelgisgæslunnar þá eru ekki uppi neinar hugmyndir um að gera breytingar á því hvernig hún stundar viðskipti sín. Ég held að það væri líka varhugavert ef við gerðum meira af því að láta ríkisfyrirtæki starfa við aðrar forsendur en önnur fyrirtæki. Að sjálfsögðu er þó gert ráð fyrir þessum hluta útgjalda Landhelgisgæslunnar í fjárveitingum sem hún fær á hverju ári frá hv. Alþingi á fjárlögum.