132. löggjafarþing — 98. fundur,  3. apr. 2006.

Opinber gjöld af bensíni og olíu.

[15:41]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Frú forseti. Ég var á báðum áttum um hvort ég ætti að koma upp í þriðja sinn. Ég óttast að ef ég nefni það enn og aftur, hvað varðar Gæsluna sem er svo ótrúlega vitlaust, að hæstv. fjármálaráðherra festist í þessu fari, að hrekja Gæsluna úr landi til að kaupa olíu. Ég vonast til að menn sjái að sér. Það er engin skynsemi í þessu. Íslenska ríkið tapar á þessu og það er ótrúlegt að hæstv. fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins sjái þetta ekki.