Opinber gjöld af bensíni og olíu.
Frú forseti. Ég skil vel að hv. þingmaður hafi verið tvístígandi yfir að koma upp aftur til að ræða þetta mál. Ég held að það sé mjög sérstakt að predika svo stíft eins og hann gerir um að sérstakar reglur eigi að gilda um eina tiltekna ríkisstofnun. Það væri væntanlega hægt að finna alls konar undanþágur varðandi virðisaukaskatt af hinu og þessu fyrir hinar og þessar aðrar ríkisstofnanir.
Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að reyna að hafa reglurnar sem almennastar og hafa undanþágurnar sem fæstar. Við eigum að reyna að láta ríkisstofnanirnar vinna á sem líkustum grundvelli og hið almenna atvinnulíf þarf að vinna. Að öðru leyti verð ég að treysta forstöðumönnum stofnananna til að fara eftir þeim fjárveitingum sem Alþingi ákvarðar, sem hv. þingmaður tekur þátt í að ákvarða, að borin sé virðing fyrir þeim ákvörðunum.