132. löggjafarþing — 98. fundur,  3. apr. 2006.

Stjórn fiskveiða.

448. mál
[18:25]
Hlusta

Frsm. minni hluta sjútvn. (Jón Gunnarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég hefði ákaflega gaman af því ef hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson gæti útskýrt fyrir okkur það sem hann sagði að hægt væri að setja almennar reglur sem ekki hefðu áhrif á neinn, hvernig í ósköpunum á það að vera hægt? Það er ekki hægt að setja almennar reglur sem ekki hafa nein áhrif. Menn setja almennar reglur sem hafa áhrif á alla þá sem starfa í greininni, það er það sem menn gera.

Það gerði hæstv. ráðherra með frumvarpi sínu þegar hann lagði það fram og með rökum sínum í 1. umr. fór hæstv. ráðherra sérstaklega yfir það og lagði vel á sig að útskýra af hverju prósenturnar væru 6%, 9% og 9% af heild, vegna þess að eftir skoðun var það álit hæstv. ráðherra og ráðgjafa hans í sjávarútvegsráðuneytinu sem komu að frumvarpsgerðinni að best væri að gera þetta svona til að vera ekki að setja sérstakar íþyngjandi ákvarðanir á einn eða tvo aðila í greininni en ekki aðra.

Mér þótti hæstv. ráðherra gera það ágætlega. Það er kannski í dúr við ástandið milli stjórnarflokkanna eins og það er þessa dagana að hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, sem situr á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn, telur sig þurfa að koma hér upp og hnýta sérstaklega í þessi rök hæstv. sjávarútvegsráðherra. Það gerir hv. þingmaður einmitt með orðum sínum því að ég fór yfir og gerði í málflutningi mínum rök hæstv. sjávarútvegsráðherra í raun að mínum, að eðlilegast hefði verið að fara þá leið sem ráðherrann lagði til. En það er alveg auðséð að hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson er ekki sammála hæstv. ráðherra í því og er náttúrlega partur af meiri hluta sjávarútvegsnefndar sem afgreiðir málið út með þeim hætti að gjörbreyta frumvarpi hæstv. ráðherra.