132. löggjafarþing — 98. fundur,  3. apr. 2006.

Stjórn fiskveiða.

448. mál
[19:59]
Hlusta

sjávarútvegsráðherra (Einar K. Guðfinnsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. 5. þm. Norðvest. spurði mig fáeinna spurninga sem mér er ljúft að reyna að svara.

Hv. þingmaður spurði mig fyrst varðandi 3. gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að ráðherra sé heimilt að setja nánari reglur um það sem þar segir og atriði sem lúta að framkvæmd flutnings aflamarks og greiðslu gjalds vegna hans.

Ég held að það sé mjög mikilvægt að undirstrika það sem þar segir, að hér er eingöngu verið að veita ráðherra heimild til þess að setja reglur sem lúta að sjálfri framkvæmdinni á flutningi á aflamarkinu, vegna þess að hér er verið að taka upp breytt fyrirkomulag. Í stað þess að þetta gerist þannig að menn sendi tilkynningu til Fiskistofu og fái það síðan staðfest þá er gert ráð fyrir því að þarna sé verið að opna möguleika á að Fiskistofa geri þjónustusamning við tilteknar útgerðir þar sem nánar verður kveðið á um það hvernig nákvæmlega skuli staðið að því að útgerðirnar geti síðan flutt aflaheimildir á milli sín án þess að það hafi með þessum hætti sérstaka viðkomu hjá Fiskistofu. Hérna er eingöngu verið að, má segja, taka upp möguleika sem við nýtum okkur flest í daglegu lífi okkar, við notum tölvutæknina til þess að færa peninga á milli, upplýsingar á milli og þess háttar. Auðvitað verður nákvæmlega frá því gengið þannig að engar þær upplýsingar sem þurfa að vera til staðar, t.d. vegna skattalegra aðstæðna eða vegna aðstæðna í samningum útgerðarmanna og sjómanna — að það sé hallað á nokkuð í þeim efnum. Það er mikilvægt að þetta sé áfram gagnsætt eins og það á að vera. Sá sem hér stendur mun að sjálfsögðu ekki vinna þessar reglur öðruvísi en þannig að öll skilyrði kjarasamninga verði uppfyllt og gengið frá öðrum slíkum atriðum sem nauðsynlegt er að liggi fyrir.

Hv. þingmaður spurði mig jafnframt varðandi byggðakvóta til Bíldudals. Mér er ekki kunnugt um það atvik sem hv. þingmaður vísar til en nefni það aðeins að bæjaryfirvöld í Vesturbyggð gengu út frá því og lögðu til sérstök ákvæði sem kváðu á um að reynt yrði að tryggja að þessar aflaheimildir nýttust viðkomandi byggðarlagi og ég vona að svo megi verða.