132. löggjafarþing — 98. fundur,  3. apr. 2006.

Stjórn fiskveiða.

448. mál
[20:01]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. sjávarútvegsráðherra fyrir skýr svör og tek undir síðustu orð hans um að aflaheimildir sem fara eiga til Bíldudals eða Vesturbyggðar nýtist fólkinu sem þar býr og að ekki sé öðruvísi með þær farið.