Ríkisútvarpið hf.
Herra forseti. Ég vil fá útlistanir á því frá hv. þingmanni hvað það var sem var að í meðferð nefndarinnar. Það voru allir eða vel flestir þeirra sem vettlingi gátu valdið kallaðir fyrir nefndina og við funduðum um málið held ég í átta eða níu skipti og gáfum okkur eina tvo mánuði til að hafa málið til meðferðar.
Varðandi eiginfjárhlutfallið og þau sjónarmið sem komið hafa fram hjá hv. þingmanni hygg ég að ég hafi farið ágætlega yfir sjónarmið mín um það. Hæstv. menntamálaráðherra og hæstv. fjármálaráðherra geta staðfest það að menn ætla sér ekki að hleypa þessu félagi af stokkunum þannig að það verði gjaldþrota. Verið er að meta eignir og kanna með hvaða hætti þessari eiginfjárstöðu verður hagað. Það verður náttúrulega gripið til aðgerða í samræmi við það.
En það (Forseti hringir.) verður ekki gert nema á fjárlögum eða fjáraukalögum eins (Forseti hringir.) og hv. þingmaður veit.