132. löggjafarþing — 99. fundur,  4. apr. 2006.

Ríkisútvarpið hf.

401. mál
[17:33]
Hlusta

Frsm. minni hluta menntmn. (Mörður Árnason) (Sf) (andsvar):

Ég tel, forseti, að ef þessi regla verður að veruleika sé það ánægjuleg breyting á hinu upphaflega frumvarpi hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra um opinber hlutafélög. Fyrsti minni hluti sem hv. þingmaður talaði hér um er væntanlega stærsti minni hlutinn, þ.e. meiri hluti nefndarinnar, í raun og veru stjórnarliðarnir í nefndinni. Ég tel þetta ánægjulegt og vissulega skref í áttina að því að búa til opinber hlutafélög með þeim hætti sem við teldum æskilegt.

Hins vegar er þetta gagnvart ríkisstofnun ekki nægilegt því að upplýsingalögin veita innsýn í allt aðra hluti, og eru nú reyndar með í frumvarpi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem lagt var fram til hliðar við þetta, og veita almenningi allt annan rétt en þessar skriflegu fyrirspurnir sem þingmenn og aðrir kjörnir fulltrúar, ef um þá er að ræða, geta komið með á aðalfundi félagsins. Eins og við vitum báðir, ég og hv. þingmaður, eru upplýsingalögin miklu víðtækari og veita rétt til upplýsinga á miklu fleiri sviðum á öllum tímum sem um er að ræða. Með Ríkisútvarpið er þetta mjög mikilvægt, sérstaklega með Ríkisútvarpið vegna þess að hvort sem það er hlutafélag eða sjálfseignarstofnun er það öðruvísi, það hefur svo mikla sérstöðu sem ríkisútvarp, sem útvarp í almannaþágu. Þar eiga allar upplýsingar að liggja fyrir sem ekki falla beinlínis undir viðskiptaleyndarmál á hverjum tíma.