132. löggjafarþing — 99. fundur,  5. apr. 2006.

Ríkisútvarpið hf.

401. mál
[05:33]
Hlusta

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Hv. þm. Ögmundur Jónasson spyr hve lengi forseti ætli að halda þingfundi áfram. Það er heldur erfitt fyrir forseta að gera úr forsetastól nokkur plön um þinghaldið þegar menn halda eins langar ræður og hv. þingmaður hefur haldið. En forseti ætlar a.m.k. að halda þingfundi áfram enn um sinn og gefa hv. þm. Pétri H. Blöndal orðið.