132. löggjafarþing — 100. fundur,  5. apr. 2006.

Tilkynning um dagskrá.

[12:01]
Hlusta

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Klukkan hálffjögur í dag fer fram utandagskrárumræða um útreikning bóta hjá Tryggingastofnun ríkisins. Málshefjandi er hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson. Hæstv. heilbrigðisráðherra Siv Friðleifsdóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.