Leiguverð fiskveiðiheimilda.
Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra sagði að verðmyndunin væri ekki alveg augljós og ég er ekki hissa þó að hann segi það. Sannleikurinn er auðvitað sá að það eru stórir aðilar sem ákveða verðið. Út frá hverju gera þeir það? Þeir ákveða þetta verð út frá fjármögnunarmöguleikum á veiðirétti og því hvað hægt er að fá fyrir þetta á markaðnum. Niðurstaðan er sú að það er í raun og veru ekki hægt að gera út á leigukerfinu, það er einhvers konar viðbótargeta, og þeir sem eru í því kerfi hafa mjög bága afkomu. Þetta er auðvitað gjörsamlega óviðunandi fyrirkomulag og veldur því að nýliðar í útgerð eiga enga möguleika í raun og veru til að komast inn í útgerðina að neinu gagni.
Það þyrfti auðvitað að taka á þessu máli því það er ekki hægt að kalla þetta neitt annað en okur í skjóli þeirra reglna sem hér gilda (Forseti hringir.) þar sem þeir sem eiga miklar veiðiheimildir þurfa í raun og veru ekki að veiða (Forseti hringir.) nema fjórða partinn af þessu.