Leiguverð fiskveiðiheimilda.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og þeim hv. þingmönnum sem þátt tóku í umræðunni. Hún var fjörug eins og búast mátti við. Ráðherra talaði um að það væri margt sem betur mætti gera og skoða og ég skildi hann þannig að hann tæki undir þá ábendingu að skoða hvernig verðmyndun á leiguverði fiskveiðiheimilda eigi sér stað og ég tel það vera bráðnauðsynlegt. Svona rétt til að botna þetta þá stendur spurningin enn þá um samráð eða ekki samráð varðandi verðmyndun á veiðiheimildum. Hins vegar veltir maður því jafnframt fyrir sér hvort sala veiðiheimilda sé í raun og veru brot á sjálfum hegningarlögunum. Þetta er smáviðbót inn í umræðuna því að miðað við 253. gr. hegningarlaga má ekki nota sér eins og þar segir, með leyfi forseta:
„Hafi maður notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða það, að hann var honum háður, til þess að afla sér með löggerningi hagsmuna eða áskilja sér þá, þannig að bersýnilegur munur sé á hagsmunum þessum og endurgjaldi því, sem fyrir þá koma eða skyldi koma, eða hagsmunir þessir skyldu veittir án endurgjalds, þá varðar það …“ o.s.frv.
Maður veltir því fyrir sér, frú forseti, hvort með túlkun þessarar lagagreinar sé sala veiðiheimilda hreinlega lögbrot og jafnframt veltir maður því enn og aftur fyrir sér hvað „framsal aflaheimilda“ þýðir í raun og veru. Er það í raun ekki hrein og bein afhending eða er virkilega hægt að túlka það svo að það sé heimild til að selja veiðiheimildir?