132. löggjafarþing — 100. fundur,  5. apr. 2006.

Þjónusta við börn og unglinga með geðraskanir.

482. mál
[13:28]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Frú forseti. Það er vissulega þörf umræða sem hér er á ferðinni. Það kom vel fram í umræðu utan dagskrár á dögunum, um þjónustu við börn og unglinga með geðraskanir, að það er ekki verið að gera neitt nema tala. Verið er að vinna í nefndum en það er ekki búið að bæta þjónustuna.

Fyrir síðustu kosningar gáfu framsóknarmenn og ríkisstjórnin út fréttatilkynningar um að það ætti að vera forgangsmál að þjóna þessum hópi, börnum og unglingum með geðraskanir. Síðan hefur ekkert gerst. Nýverið kom ákall frá barna- og unglingageðdeild til yfirvalda um að gera eitthvað í málunum og enn er bara verið að tala. Það er ekki nóg að vinna í nefndum, það þarf aðgerðir og þær þarf strax. Það hefur aldrei verið jafnslæmt ástand í málefnum þessara sjúklinga, þessara barna og þessara ungmenna, eins og í dag, því miður. Það er ekki nóg að tala um að hingað komi sérfræðingar frá útlöndum og að nefndarvinna sé í gangi. (Forseti hringir.) Það þarf að bæta ástandið strax.