132. löggjafarþing — 100. fundur,  5. apr. 2006.

Þjónusta við börn og unglinga með geðraskanir.

482. mál
[13:33]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég tel enga þörf fyrir hv. þingmann að æsa sig eins mikið og hann gerði hér. (VF: Ég er hneykslaður.) Ég skil ekki hvaða þörf er á því. Ég hef heyrt hv. þingmann segja áður að hann hafi aldrei orðið fyrir eins miklum vonbrigðum á ævinni og með þetta og hitt málið. Það er því ekki í fyrsta skipti sem við heyrum þessi miklu vonbrigði hjá hv. þingmanni.

Eins og kom fram í fyrra svari mínu er búið að fela nefndinni sem fer með stefnumótun ríkisstjórnarinnar í málefnum langveikra barna, sem er öflug nefnd og þessi ráðuneyti eiga aðild að, að skoða þessar tillögur alveg sérstaklega og útfæra þær nánar og kostnaðarmeta þær. (Gripið fram í.) Það er vegna þess að tillögurnar eru tiltölulega víðfeðmar og almenns eðlis. Við erum að setja þetta í farveg svo hægt sé að skoða þessar tillögur betur og kostnaðarmeta þær. Síðan mun þessi nefnd líka koma með hugmyndir um hvernig hægt er að koma tillögunum í framkvæmd. (Gripið fram í.)

Ég er nokkuð ánægð með að við séum búin að fá til liðs við okkur sænskan sérfræðing sem var sérstakur ráðgjafi sænsku ríkisstjórnarinnar í geðheilbrigðismálum. — Nú yfirgefur hv. þingmaður salinn. Það var leitt, því að ég er að svara fyrirspurn hans. Ég veit ekki til hvers ég ætti að halda áfram með svar mitt ef hann kemur ekki til baka. — En ég vil þá bara segja þingheimi sem hér situr að ég er nokkuð ánægð með að hafa fengið einn færasta sænska sérfræðinginn á þessu sviði til að aðstoða okkur við geðheilbrigðismálin og þá sérstaklega þau sem snúa að börnum. Ég átta mig ekki á hvers vegna hv. þingmaður þarf æsa sig svo mikið yfir þessum málum, þau eru í mjög góðum farvegi. En hann er farinn og hefur greinilega ekki áhuga að heyra þessi svör neitt frekar.