132. löggjafarþing — 100. fundur,  5. apr. 2006.

MFS-einingin á Landspítala -- háskólasjúkrahúsi.

563. mál
[14:08]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Spurt er: „Er ráðherra tilbúinn að tryggja áframhaldandi þjónustu svokallaðrar MFS-einingar innan Landspítala – háskólasjúkrahúss?“

Því er til að svara að einingin MFS, eða meðganga, fæðing og sængurlega, var stofnuð árið 1994 og hefur frá þeim tíma veitt góða þjónustu og verið um margt til fyrirmyndar. Á þessu tímabili hafa þó ýmsar aðstæður breyst. Gerður var samningur sem nýlega var endurnýjaður milli sjálfstætt starfandi ljósmæðra og Tryggingastofnunar ríkisins um að sinna heimaþjónustu þannig að konur gætu farið snemma heim.

Miðstöð mæðraverndar var stofnuð árið 2002 og er hún innan heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og myndar þar kjarna starfseminnar en allar heilsugæslustöðvar á Stór-Reykjavíkursvæðinu hafa nú sérstakar ljósmæður til að sinna mæðravernd og sumar hafa í raun margar ljósmæðrastöður.

Þjónusta sambærileg við MFS-þjónustuna stendur konum til boða á heilsugæslustöðvunum og er það almenn skoðun að þar sé henni best fyrir komið.

Í öðru lagi spyr þingmaðurinn: „Ef ekki, verður þjónustan og núverandi frelsi einstaklinga til að velja um mismunandi þjónustu tryggt annars staðar og þá með hvaða hætti?“

Því er til að svara að ég tel að þær skipulagsbreytingar sem nú eiga sér stað í mæðravernd á höfuðborgarsvæðinu bjóði konum meira og betra val en áður. Aðeins 10% kvenna hafa komist að í MFS hingað til en nú gefst konum kostur á að velja sér ljósmóður á sinni heilsugæslustöð og hún getur að mjög miklu leyti fylgt konunni eftir alla meðgönguna. Samhliða þeim breytingum gefst mun fleiri konum en verið hefur kostur á að fæða í Hreiðrinu svokölluðu á LSH en þar fara fram fæðingar sem ekki krefjast mikillar sérhæfðrar aðstoðar.

Í þriðja lagi er spurt: „Hvernig verður sú aðstaða nýtt sem MFS-einingin hefur notið verði þjónustan lögð niður á Landspítalanum?“

Samkvæmt upplýsingum frá sviðsstjórum kvennasviðs á LSH verður MFS-aðstaðan enn betur nýtt en verið hefur. Í stað þess að 280 konur fæði í Hreiðrinu geta eftir yfirstandandi breytingar um 700 konur fætt þar.

Í fjórða lagi er spurt: „Hve margar konur hafa valið þjónustu MFS-einingarinnar á undanförnum árum og hversu hátt hlutfall er það af heildarfjölda kvenna sem eignast hafa börn á spítalanum?“

Þar sem erfitt hefur reynst að manna MFS-eininguna og ýmis vandkvæði hafa komið upp við framkvæmd þessa kerfis, er það mjög breytilegt frá ári til árs hve margar konur hafa fætt í MFS. Árin 1995–2001 voru það um 200 konur á ári. Árin 2001–2002 voru það um 400 konur, en árin 2002–2005 um 300 konur. Er það um 10% af heildarfjölda.

Í fimmta lagi er spurt: „Hvað kostar þjónusta MFS-einingarinnar í samanburði við aðra þjónustu Landspítalans sem varðar meðgöngu, fæðingu og sængurlegu?“

Virðulegi forseti. Því er til að svara að ekki er alveg einfalt að bera saman kostnað við starf á fæðingargangi þar sem ljósmæður starfa eingöngu við fæðingar og kostnað MFS-einingarinnar þar sem ljósmæður sinna konum á meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. En ef heildarlaun er skoðuð eru laun MFS-ljósmæðra 6–7% hærri, en það skýrist að hluta til af því að aukinn kostnaður er við bakvaktir MFS-ljósmæðra og útköll vegna fæðinga.

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður hefur með spurningum sínum beint sjónum okkar að breytingum á þeirri þjónustu sem veitt er konum um meðgöngu, fæðingu og sængurlegu á höfuðborgarsvæðinu nú um stundir. Ég tel að MFS-einingin hafi sannarlega átt fullan rétt á sér á sínum tíma og hafi skilað góðu verki. Ég er hins vegar líka sannfærð um að þær breytingar sem nú er verið að gera munu svara kalli tímans og þær munu efla enn frekar þjónustuna við þennan mikilvæga hóp skjólstæðinga heilbrigðisþjónustunnar. Samfella í þjónustu er vel tryggð. Konur fá þjónustu sem næst heimahúsum innan vébanda heilsugæslunnar og öryggis er gætt eftir því sem frekast er unnt.

Ég tel að sú þróun sem er að verða á MFS-þjónustunni eða þjónustu gagnvart konum sem eru á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu, sé mjög vel fyrir komið í þessu nýja kerfi sem hefur tekið eiginlega við af MFS-kerfinu.