MFS-einingin á Landspítala -- háskólasjúkrahúsi.
Virðulegur forseti. Ég get nú ekki áttað mig á því að við séum að spítalavæða fæðingar. Ég held að það sé nákvæmlega það sem ekki er verið að gera. Þróunin hefur verið sú að við erum einungis að veita þá þjónustu sem þörf er á hverju sinni varðandi fæðingar. Þannig að ég get ekki tekið undir að við séum að spítalavæða fæðingar almennt.
Það er einmitt þannig að sængurlegan hefur verið að stórbreytast á undanförnum árum. Hún er miklu styttri núna en nokkurn tímann áður. Það er undantekning ef konur liggja lengi inni. Þá er það vegna þess að eitthvað mikið hefur verið að. Svo það er aldeilis ekki verið að spítalavæða fæðingar í dag. Það er þvert á móti verið að reyna að standa að þeim á eins náttúrlegan hátt og hægt er í hverju tilviki fyrir sig.
Varðandi MFS-þjónustuna er búið að efla heilsugæsluna á þessu sviði og það er þannig að sama ljósmóðirin getur fylgt konu eftir meira og minna alla meðgönguna og eftir fæðingu líka. Þar er mikil samfella. Ég tel líka að það sé mjög jákvætt að með þessum breytingum, eins og hér kom fram í fyrra svari mínu, að samkvæmt upplýsingum frá sviðsstjórum kvennasviðs á LSH, þá verður MFS-aðstaðan nýtt enn betur en áður. Í stað þess að 280 konur fæða í Hreiðrinu þá munu þessar breytingar bjóða þeirri stöðu heim að um 700 konur geti fætt þar.
Ég tel því að við sinnum þjónustu við konur á meðgöngu mjög vel bæði í fæðingu og á sængurlegu og að sú þróun sem hefur átt sér stað upp á síðkastið bjóði upp á mjög góð úrræði.