132. löggjafarþing — 100. fundur,  5. apr. 2006.

Gjaldtaka á Landspítala -- háskólasjúkrahúsi.

643. mál
[14:21]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Ásta R. Jóhannesdóttir) (Sf):

Forseti. Ég ber fram fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um mismunun sjúklinga með gjaldtöku á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Þar á ég við annaðhvort mismikla gjaldtöku fyrir sambærileg veikindi eða jafnvel enga og mikla gjaldtöku annars vegar.

Við höfum verið að ræða undanfarið skýrslu sem yfirmenn og sérfræðingar hjá Tryggingastofnun ríkisins gerðu um réttlátari notendagjöld í sjúkratryggingunum í heilbrigðisþjónustunni. Það hefur verið mjög mikilvæg umræða. Það er auðvitað nauðsynlegt að bregðast við ef í ljós kemur að mikill ójöfnuður er orðinn í heilbrigðiskerfinu.

Mér finnst ástæða til að beina athyglinni að sjúklingum sem njóta þjónustu við Landspítala – háskólasjúkrahús og mismunandi greiðslur sem þeir búa við. En 15. mars. síðastliðinn skrifaði krabbameinssjúklingur, sem skrifar undir grein sína sem öryrki, í Morgunblaðið og vakti athygli á þeirri mismunun sem krabbameinssjúklingar búa við, sem eru í meðferð á Landspítalanum. Hann lýsir því hvernig hann fer á göngudeildina, kemur á þriggja vikna fresti, fær sneiðmynd og sprautur o.s.frv. Hann segir hér, öryrkinn, að fyrir þessa læknisþjónustu borgi hann yfir 100.000 kr. á ári, eftir að hann er kominn með afsláttarkort.

Á sama tíma þarf krabbameinssjúklingur sem er lagður inn á K-deild Landspítala – háskólasjúkrahúss og fær meðferð þar, ekki að borga neitt, hann fær ókeypis þjónustu. Þarna eru tveir krabbameinssjúklingar, annar borgar yfir 100.000 kr. á ári, með afsláttarkorti, og hinn borgar ekki neitt. Þarna er auðvitað komin upp staða sem við þurfum aðeins að huga að.

Ég spyr því hæstv. heilbrigðisráðherra: Finnst ráðherra eðlilegt að mismuna sjúklingum, svo sem krabbameinssjúklingum, með gjaldtöku eins og gert er á Landspítala – háskólasjúkrahúsi, eftir því hvort þeir fá meðferðina á göngudeild eða á legudeild?

Hefur hæstv. ráðherra áform um að koma til móts við sjúklinga sem bera mikinn kostnað af meðferð á göngudeildum sjúkrahúsanna? Ég er hér bara með dæmi um sjúkling sem borgar 100.00 kr. á ári fyrir krabbameinsmeðferð. Það eru mun verri dæmi til.

Það er hægt að fá skattafslátt vegna mikils kostnaðar í heilbrigðiskerfinu. Það þarf að huga að því á skattframtali. Það eru greiddir styrkir úr sjúkrasjóðum stéttarfélaganna eða verkalýðsfélaganna, en þeir eru skattlagðir, eins og hefur komið fram hér í umræðunni.

Ég spyr hæstv. ráðherra: Er hann að huga að jöfnuði þannig að það verði (Forseti hringir.) komið til móts við þá sjúklinga sem eru að sækja þjónustu sína á göngudeildina, (Forseti hringir.) sem er auðvitað hagkvæmari fyrir spítalann, en kostnaðarsamari fyrir sjúklinginn?