Skattkerfið og fjárfestingar í sprotafyrirtækjum.
Herra forseti. Skattumhverfi íslenskra fyrirtækja er með því besta sem þekkist og nýtist sprotafyrirtækjum jafnt sem öðrum. Tekjuskattur fyrirtækja er með þeim lægsta sem þekkist í okkar helstu viðskiptalöndum og tryggingagjald er mun lægra en víðast hvar. Þá hefur eignarskatturinn verið afnuminn en brottfall hans er afar mikilvægt skref að því markmiði sem íslensk stjórnvöld hafa stefnt markvisst að á undaförnum árum sem er að gera skattumhverfi íslenskra fyrirtækja fyllilega samkeppnishæft við skattareglur annarra ríkja.
Jafnframt hafa stjórnvöld lagt áherslu á að skattbreytingarnar væru almennar en ekki sértækar þannig að þær nýttust öllum sem atvinnurekstur stunda. En alltaf má gera betur ef duga skal. Fyrir liggur að þróunin í löndunum í kringum okkur hefur verið í þá átt að draga úr skattlagningu fyrirtækja og því hefur bilið á milli okkar og þeirra verið að minnka að undanförnu. Einstakir þættir þessarar þróunar eru nú til sérstakrar athugunar hjá sérfræðingum fjármálaráðuneytisins en jafnframt hef ég nýverið skipað sérstaka nefnd sem hefur það hlutverk að fara yfir skattkerfið til að varpa ljósi á hvaða þættir það eru sem gera Ísland samkeppnishæft og skilvirkt.
Ýmis þau atriði sem sérfræðingar ráðuneytisins eru að skoða og útfæra um þessar mundir varða sprotafyrirtæki fremur en önnur þó að áhersla sé áfram lögð á almennar breytingar. Þar má nefna að nýlega hefur verið gefin út reglugerð um lengri aðlögunartíma varðandi fyrirframskráningu í virðisaukaskattskerfinu en mörg sprotafyrirtæki, einkum í hátækniiðnaði, starfa oft í langan tíma með tilheyrandi kostnaði áður en þau geta hafið sölu og framleiðslu á vöru eða þjónustu.
Þá hefur verið lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingar á skattskyldu samlagshlutafélaga sem talið er skapa stofnanafjárfestum, svo sem lífeyrissjóðum, aukið svigrúm til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum. Einnig hefur verið skipuð nefnd til þess að skoða sérstaklega þær leiðir sem ýmis nágrannaríki okkar hafa farið, m.a. Noregur, í að efla rannsóknar- og þróunarstarf með sérstökum skattalegum ívilnunum og er niðurstöðu að vænta á næstu mánuðum hvað það varðar.