Skattlagning styrkja úr sjúkra- og styrktarsjóðum.
Ég þakka ráðherra svörin. Ég held að það sjáist og heyrist á svari ráðherra hvað þessir sjúkrasjóðir eru mikilvægir þegar um er að ræða 10–11 þúsund manns sem á ári hverju hafa fengið styrki úr þessum sjóðum upp á 700–800 milljónir. Þetta eru mjög mikilvægir styrkir og aðstoð, bæði við samfélagið í heild og þá einstaklinga sem þurfa á því að halda. Því er það til skammar fyrir ríkisvaldið og nær auðvitað engri átt að skattleggja greiðslur úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaganna sem einstaklingar borga í.
Ég held að breytingin sem gerð var árið 2002 sé mjög vafasöm framkvæmd, að setja þessar greiðslur inn í staðgreiðsluna, og ég held að það sé raunar vafasamt að hægt sé að skattleggja þær. Ef svo er að lögin séu með þeim hætti að hægt sé að skattleggja þær þá á auðvitað að breyta þeirri framkvæmd. Ég er alveg viss um að mikill meiri hluti er fyrir því í þjóðfélaginu og jafnvel í þinginu, ég efa það ekki. Af því að ég hef heyrt að mörgum þingmönnum blöskrar að þetta skuli skattlagt þá er ég sannfærð um að meirihlutavilji er fyrir því á Alþingi að koma með frumvarp og gera það að lögum að þessar greiðslur verði undanþegnar skattlagningu.
Það er auðvitað óeðlilegt að ríkisvaldið, sem hefur hækkað verulega komu- og rannsóknargjöld þannig að fólk á í miklum erfiðleikum með að standa undir útgjöldum vegna þess, skuli í ofanálag skattleggja smástyrk sem þessir einstaklingar fá úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga. Ég trúi því og treysti að hæstv. ráðherra bregðist nú við með þeim hætti að leggja til að skattlagning á þessum styrkjum verði undanþegin. Það er ekki bara hægt að vísa í 65. gr. skattalaga þar sem heimild er til lækkunar á tekjuskattsstofni, einhverjar smáskattaívilnanir ef um er að ræða veikindi eða slys. (Forseti hringir.) Málið er svo stórt að það verður að breyta lögum.