Viðhald sauðfjárveikivarnagirðinga.
Hæstv. forseti. Því miður var ræða hæstv. ráðherra staðfesting á því sem ég sagði, að vandamálið er virkilega mikið. Menn hafa greinilega misst svolítið sjónar á hversu mikilvægar þessar girðingar eru og sjúkdómavarnirnar. Af því að þessi barátta tekur svo gríðarlega langan tíma. Það er kannski skiljanlegt að almenningur og jafnvel einhverjir fleiri missi eftirtektina á því hversu mikilvægt þetta er. En það hefur náðst, eins og hæstv. ráðherra sagði, gríðarlega mikill árangur í baráttunni við riðuveiki og aðra sjúkdóma. En það er auðvelt að missa þann árangur niður á mjög stuttum tíma ef eitthvað gerist af því tagi sem t.d. ónýtar girðingar bjóða heim.
Staðið hefur verið afar illa að viðhaldi girðinga á undanförnum árum. Að minnsta kosti veit ég að sums staðar hafa þær hreinlega staðið opnar með götum. Menn hafa rutt þeim niður ef þær hafa verið fyrir þeim. Þeir virðast ekki hafa hugmynd um til hvers þessar girðingar eru, sumir hverjir sem fara um heiðarlönd.
Það er líka þannig að ekki hefur einu sinni verið staðið almennilega að því að gamlar girðingar hafi verið hreinsaðar í burtu þegar hinar nýju hafa verið settar upp, þegar endurnýjun hefur farið fram. Það þarf að taka þetta allt til endurskoðunar. Ég tek undir með hæstv. ráðherra. Það er alveg full ástæða til að fækka hólfum. Það kann að vera alveg rétt og kom fram í umfjöllun um málið í fyrra.
En aðalatriði málsins er að ráðherra verður að standa sig betur í að ná fjármunum til að halda við girðingunum. Hann má ekki sætta sig við annað en að hægt sé að halda þeim í forsvaranlegu ástandi. Það er óásættanlegt að við gefum eftir í þessari baráttu.