Boð til heyrnarskertra um viðvarandi hættuástand.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svörin. Mér heyrist þó vera full ástæða til að þessi mál verði tekin til skoðunar og athugunar og hvort ástæða sé til að fara út í að komið verði upp einhvers konar kerfi þar sem hægt er að nota þessa nýju tækni, þ.e. farsímana, til þess að koma upplýsingum til þessa fólks. Textavarpið er gott svo langt sem það nær, sjónvarpið er svo gott líka svo langt sem það nær að því tilskildu að þar séu birtar upplýsingar. En fólk er ekki alltaf í tengslum við þessi tæki, það er ekki alltaf í nágrenni við þau. GSM-útbreiðslan er alltaf að verða betri og betri um land allt og GSM-símar eru í dag á flestum fjölförnustu stöðum landsins, þó að enn séu gloppur í kerfinu þá fækkar þeim stöðugt.
Ég held að 10% þjóðarinnar flokkist undir að vera heyrnarskert eða heyrnarlaus þannig að sá hópur er ótrúlega stór. Það eru náttúrlega fyrst og fremst þeir sem eru heyrnarlausir sem þyrftu á þessu að halda og ég held því að svona til vonar og vara væri það alveg þess virði að þetta yrði skoðað mjög vandlega og að jafnvel yrði farið út í að safna saman símanúmerum hjá þessu fólki þannig að stjórnvöld, yfirvöld gætu komið boðum til þeirra með skjótum og öruggum hætti ef einhverja mikla vá ber skyndilega að höndum, náttúruhamfarir, stórslys eða annað. Sem betur fer höfum við Íslendingar blessunarlega sloppið við þetta mörg undanfarin ár en maður veit jú aldrei og einmitt þegar svona lagað gerist er orðið af seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í hann.