132. löggjafarþing — 101. fundur,  6. apr. 2006.

Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnun.

[10:36]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Árlega verða umræður um vandamál þorskstofnsins. Hann heldur áfram að minnka. Það virðist vera eins með hann og Framsóknarflokkinn, að hann eygi það eitt að skreppa saman og það er auðvitað alvarlegt mál, þá er ég að tala um þorskstofninn en ekki Framsóknarflokkinn, að þetta skuli ganga svona illa hjá okkur.

Mér finnst full ástæða til að menn fari yfir heildarstefnuna í þessu öllu. Ég er á þeirri skoðun að menn eigi að gefa umgengninni um lífríkið í hafinu meiri gaum en gert er. Hvar er nú sú trú Íslendinga, þegar barist var í þorskastríðunum, að ekki megi ganga um lífríkið eins og togararnir gerðu á þeim tíma?

Hvað eru Íslendingar að gera núna? Nú veiðum við langstærstan hluta af öllum afla okkar með botnlægum dregnum veiðarfærum. Er ekki ástæða til að hæstv. sjávarútvegsráðherra gefi því gaum og menn fari virkilega í endurskoðun á hvernig við göngum um lífríkið? Það þætti ekki par gott að haga sér svona uppi á landi, það er a.m.k. ljóst. Ég hef áður sagt að það er full ástæða til að fram fari umhverfismat á öllum veiðarfærum sem notuð eru í hafinu. Þeim ætti ekki að sleppa í hafið nema að menn hafi gengið úr skugga um að þau séu boðleg í umgengninni við lífríkið. Þetta er stórverkefni sem þarf að ráðast í og það á að láta náttúruna njóta vafans meðan menn hafa ekki leyst það verkefni af hendi.

Þetta er að mínu viti það sem menn þurfa að taka á núna. Við erum í raun að fylgjast með öndunarvélinni og ástandi sjúklingsins. A.m.k. virðist það liggja fyrir okkur á hverju einasta ári að fá vondar fréttir.