132. löggjafarþing — 101. fundur,  6. apr. 2006.

Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnun.

[10:52]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Frú forseti. Ég ætla að taka undir með hæstv. sjávarútvegsráðherra að það eru vonbrigði að fá svona skýrslur æ ofan í æ. En ég lýsi samt sem áður furðu á að hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur ekkert gefið í skyn hér í umræðunni, og aldrei síðan hann tók við embætti, að fara eigi að hugsa hlutina upp á nýtt. Heldur ætlar hann að halda áfram eins og kontóristi í sama kerfinu og þykist ekkert ráða við að breyta því með neinum hætti. Þó svo að hann hafi ætíð boðað, þegar hann hefur verið frambjóðandi, að hann ætli að breyta einhverju. En kerfið hefur einungis versnað og breyst til hins verra síðan hann tók við hér, hann hefur ýtt á hnappa og stutt hvert frumvarpið á fætur öðru sem hefur greitt byggðum landsins þung högg.

Ræðumaðurinn sem talaði á undan mér, hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, minntist á eitthvert endanlegt mat. Við verðum að ræða það í þessu samhengi að endanlegt mat á veiðistofni er stundum metið jafnvel mörg ár aftur í tímann. Menn hafa misreiknað veiðistofna. Í kringum síðustu aldamót var t.d. veiðistofninn sem veitt var úr nokkrum árum fyrr reiknaður upp á nýtt og þá kom nýtt endanlegt mat. Þannig að hvað er endanlegt í þessu? Ég held að það sé vert að spyrja að því.

Þegar menn eru að spá fyrir um uppbyggingu áratugi fram í tímann eins og Hafrannsóknastofnun hefur gert en geta síðan ekki spáð fyrir um þorskstofninn á næsta ári þá finnst mér það ekki vera góðs viti. Ég er á því að löngu sé tímabært að fara að skoða þetta með gagnrýnum hætti, þetta gengur ekki. Við í Frjálslynda flokknum höfum bent á að með því að taka upp veiðar sem byggjast á því að nota sóknarstýringu þá fái menn mikinn afla þegar mikill afli er á slóðinni en ekki út frá einhverjum misgóðum reikniformúlum sem margsinnis hefur komið í ljós að (Forseti hringir.) virka ekki.