Staðan í hjúkrunarmálum.
Hæstv. forseti. Fyrir tæpri viku fór hér fram umræða um störf þingsins sem hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir hafði frumkvæði að og beindi hún máli sínu þá til hæstv. heilbrigðisráðherra. Tilefnið var þá sem og nú hjá mér, hæstv. forseti, að óska eftir svörum og viðbrögðum hæstv. ríkisstjórnar varðandi það neyðarástand sem nú ríkir í hjúkrunar- og dvalarheimilum hér á landi. Á það sérstaklega við um hjúkrunar- og dvalarheimili sem eru rekin sem sjálfseignarstofnanir.
Ég beini orðum mínum sérstaklega til hæstv. forsætisráðherra þar sem það kom í ljós í þeirri umræðu sem hér varð um störf þingsins fyrir viku að hæstv. heilbrigðisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra köstuðu boltanum á milli sín fram og til baka. Ég tel að báðir hæstv. ráðherrar og þá sérstaklega hæstv. fjármálaráðherra hafi gert sig uppvísa að því að standa ekki undir þeirri ábyrgð sem honum ber varðandi þann málaflokk sem snýr að öldruðum.
Vissulega er það hæstv. heilbrigðisráðherra sem fer með málefni á heilbrigðissviði en það er fjármálaráðherra sem ber ábyrgð á því að í fjárlögum sé afgreitt fjármagn til rekstrar dvalar- og hjúkrunarheimila hvort heldur sem sjálfseignarstofnana eða þeirra sem reknar eru af opinberum aðilum. Inn í þennan rekstur vantar sárlega fjármagn til að (Forseti hringir.) standa undir viðeigandi þjónustu og því krefst ég þess, hæstv. forseti, að forsætisráðherra gefi hér skýr (Forseti hringir.) svör varðandi þennan málaflokk.