132. löggjafarþing — 102. fundur,  10. apr. 2006.

Staðan í hjúkrunarmálum.

[15:20]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Það gerist ekki af sjálfu sér að fólk rísi upp eins og lágtlaunað starfsfólk á hjúkrunarheimilum hefur nú gert en starfsfólkið segir einfaldlega: Við látum ekki lengur búa okkur þau kjör og það vinnuálag sem raun ber vitni.

Þótt þetta gerist ekki af sjálfu sér — það kostar þrek, baráttuþrek, að rísa upp og henda baráttufána á lofti — var hitt löngu fyrirsjáanlegt, þ.e. í hvert óefni stefndi. Hér vísa ég í fjölda blaðagreina frá stjórnarandstöðunni, ítrekaðrar umræður á Alþingi og ég vil sérstaklega nefna varnaðarorð og bókanir hv. þm. Jóns Bjarnasonar við fjárlagaumræðuna í desember þar sem hann lét bóka að fyrirsjáanlegt væri að öldrunarstofnanir og hjúkrunarheimili yrðu í fjárhagsvanda og gætu ekki risið undir þeim kjarasamningum sem nauðsynlegt væri að gera til að hægt væri að reka þessar stofnanir.

Ég ætla að nota þetta tækifæri til að fagna því að nú, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna — það er kannski engin tilviljun — virðist vera að skapast þverpólitísk samstaða um að taka á þessum málum. Þá hvet ég til þess að ekki verði einvörðungu horft til hjúkrunarheimilanna heldur til Landspítalans, til Landakots, til fólks sem starfar á allt of lágum launum í fötlunargeiranum. Ég hvet hæstv. fjármálaráðherra til að beita sér fyrir því að upp verði teknir samningar við þessar stofnanir, við hjúkrunarheimilin, við dvalarheimili aldraðra sem lengi hafa bankað á dyrnar til að leggja áherslu á réttmætar kröfur sínar.

Fyrir hönd Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs ítreka ég þau orð sem komu í upphafi þessarar umræðu frá hv. þm. Þuríði Backman um að við stöndum heils hugar að baki (Forseti hringir.) slíkum kröfum.