Staðan í hjúkrunarmálum.
Frú forseti. Mér hefur fundist aðeins skorta á í þessari umræðu að hv. þingmenn fögnuðu því að forstjórar fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu hafa boðað til fundar með samninganefnd Eflingar í dag til að ræða þá stöðu og þær kröfur sem upp eru komnar. Það hlýtur að vera, alveg sama hvernig á það er litið, fyrsta skrefið til að leysa þetta mál að samningsaðilarnir, vinnuveitandinn og launþeginn, hittist og fari yfir málin til að leita að lausn.
Það var rætt um að til væru peningar á reikningum fjármálaráðuneytisins. Það er út af fyrir sig rétt að þar eru til peningar. En það hefur einhver misskilningur komið upp hjá hv. þm. Guðmundi Hallvarðssyni, þeir eru til vegna þess að byggingaframkvæmdir töfðust, ekki vegna þess að það séu fjármunir sem áttu að fara til bygginganna, heldur vegna þess að þá komu ekki hjúkrunarrými til rekstrar sem fjármunirnir áttu að renna til. Það var það sem hæstv. heilbrigðisráðherra var að reyna að segja í útvarpsviðtalinu.
Þessi umræða þróaðist reyndar út í að ræða sérstaklega málefni hinna lægstlaunuðu. Hv. þm. Ögmundur Jónasson gerði það og rennur honum út af fyrir sig blóðið til skyldunnar því að hann er forsvarsmaður eins landssambands sem er með hóp þar innan borðs sem það á við um, BSRB. Ég get vel tekið undir það með honum að þar er fólk sem er á lágum launum. Ég mun eiga samtöl við forsvarsmenn þeirra síðar í vikunni og hef mikinn áhuga á að ræða þau mál við þá. Staðreyndin er sú, frú forseti, að það hefur reynst býsna erfitt í gegnum tíðina einmitt að leiðrétta kjör þeirra því að það hefur viljað brenna við að aðrir aðilar klifri síðan upp eftir bakinu á þeim. Ef við eigum að (Forseti hringir.) leysa þetta mál þurfum við að finna nýjar aðferðir, aðrar en þær sem við höfum haft til þess hingað til.