132. löggjafarþing — 102. fundur,  10. apr. 2006.

Þátttaka ráðherra í umræðu.

[15:33]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að koma inn í þá umræðu sem var hér núna en ég ætla hins vegar að tala um fundarstjórn forseta. Hæstv. forseti hreyfði þeirri hugmynd þegar hann kynnti mál, ef ég hef tekið rétt eftir, að rædd yrðu saman fyrstu tvö málin. Ég vil leyfa mér að andmæla því og fer fram á að málin verði rædd hvort í sínu lagi.