Opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.
Virðulegi forseti. Ég spurði út í þetta málefni eingöngu vegna þess að í athugasemdum með frumvarpinu er þess getið að 15. september 2004 hafi hæstv. ráðherra skipað nefnd til að skoða samruna Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins og Iðntæknistofnunar. Síðan heldur málið áfram. Þann 2. febrúar 2005 er haldið áfram, þann 30. september 2005 er niðurstöðu skilað og mælt með því að Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og Iðntæknistofnun verði felldar saman, sameinaðar. En það er ekkert talað um Byggðastofnun fyrr en í lokin þar sem sett er fram að Byggðastofnun standi sig ekki nógu vel. Það er engin undirbúningsvinna líkt og hafði gerst tvisvar sinnum áður að því að taka Byggðastofnun inn í þetta.
Þess vegna spyr ég: Þegar Byggðastofnun dettur inn í þetta á síðustu stundu, hvað á það þá skylt við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og annað slíkt? Eins og er ítrekað kemur fram í athugasemdum í lokin að allt í einu dettur Byggðastofnun inn eins og af himnum ofan (Forseti hringir.) og þá þarf að koma því apparati einhvers staðar fyrir.