132. löggjafarþing — 102. fundur,  10. apr. 2006.

Opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.

731. mál
[16:22]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Ég vildi bara leiðrétta það strax að það hafi ekki verið fyrr en núna á vetrarmánuðum sem Byggðastofnun kom inn í þessa umræðu. Það er ekki rétt. Það er í framhaldi af því að eiginfjárhlutfall er komið niður fyrir 8% sem ég fæ fyrirtækið Stjórnhætti til að greina helstu valkosti varðandi framtíðarþróun Byggðastofnunar. Þetta fyrirtæki skilar mér skýrslu í maí 2005. Það er sem sagt rétt að verða ár síðan. Í framhaldi af því skipaði ég nefnd til að vinna að málinu og móta tillögur um framtíðina og sú nefnd er skipuð í júní 2005. Í þeirri nefnd eru m.a. Páll Magnússon, aðstoðarmaður minn sem var formaður, og Berglind Svavarsdóttir, Einar K. Guðfinnsson alþingismaður, Magnús Stefánsson alþingismaður og Sveinn Þorgrímsson, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu. Eftir að hv. þm. Einar K. Guðfinnsson varð ráðherra tók Einar Oddur Kristjánsson sæti hans í nefndinni.

Þetta mál er búið að vera alllengi til umfjöllunar í ráðuneytinu hvað varðar Byggðastofnun. Ég heyri að hv. þingmaður hefur efasemdir um að þetta sé rétt, að fara í málið eins og raun ber vitni, að sameina þessar þrjár stofnanir, og vill í raun að Byggðastofnun haldi áfram í svipuðu formi. Ég skil hann a.m.k. svo. Hvernig mundi hann þá vilja leysa mál Byggðastofnunar, mundi hann þá vilja leggja verulega mikið fjármagn inn í stofnunina til að bæta eiginfjárstöðuna? Það væru sennilega einhverjir milljarðar króna. Er það leiðin sem hann teldi að hefði verið rétt og halda þá áfram með stofnunina í svipuðu formi?