132. löggjafarþing — 102. fundur,  10. apr. 2006.

Opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.

731. mál
[16:50]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun. Það kom margt fram hjá hv. þingmanni í hennar ræðu.

Ég varð nú satt best að segja svolítið undrandi á því að hún óttaðist mest þá stærð sem yrði á stofnuninni. Við þurfum auðvitað að hugsa stórt og vera stórhuga þegar við erum að tala um uppbyggingu á landsbyggðinni.

En það er eitt sem ég vil sérstaklega spyrja hv. þingmann um. Það er þáttur atvinnuþróunarfélaganna sem eru víða á landsbyggðinni. Mig langaði að spyrja hver skoðun þingmannsins væri á þeirra stöðu innan þess nýja kerfis sem við erum að kynna hér. Í hvaða stöðu vill hv. þingmaður sjá atvinnuþróunarfélögin gagnvart þessu frumvarpi?