Opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.
Hæstv. forseti. Það fór svo sem ég átti von á að lítið yrði um svörin hjá hv. þingmanni.
Það er kannski eitt sem er rétt að taka fram í tilefni af því sem fram kom í andsvari hv. þingmann, en það er uppbygging háskóla um allt land. Það er eins og hv. þingmaður hafi ekki tekið eftir því hversu vel ríkisstjórnarflokkarnir hafa staðið að þeim málum undanfarin tíu ár eða svo.
Staðreyndin er hins vegar sú, hæstv. forseti, að Samfylkingin er stefnulaus í þessu máli eins og í öllum öðrum stórmálum. Þetta er það sem rekur sig í hverju málinu á fætur öðru að í ljós kemur að Samfylkingin hefur enga raunhæfa stefnu og í mesta falli viðurkennir að það sé ágreiningur uppi í flokknum eins og til að mynda í öryggis- og varnarmálum. Þetta er það sem blasir við þingheimi, hæstv. forseti.