132. löggjafarþing — 102. fundur,  10. apr. 2006.

Opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.

731. mál
[20:00]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun. Frumvarpið gengur út á að stofna Nýsköpunarmiðstöð Íslands og renna þar saman ýmsum verkefnum. Saman eigi þessi gjörð að geta orðið til þess, ef tilgangur frumvarpsins er rétt skilinn, að stuðla að því að hér verði betri þjónusta við nýsköpun og sprotafyrirtæki hvar sem er á landinu og stefnt er að því að efla atvinnustarfsemi almennt og stuðla að jákvæðri byggðaþróun.

Það hefur farið fram nokkur umræða um þessi mál í dag og menn hafa haft ýmis sjónarmið uppi sem er ekki óeðlilegt vegna þess að það liggur fyrir að skiptar skoðanir eru í þessu máli, hæstv. forseti. Ekki bara á milli stjórnar og stjórnarandstöðu heldur eru einnig verulega skiptar skoðanir milli ríkisstjórnarflokkanna. Hér var síðast í ræðustól hv. þm. Pétur H. Blöndal sem lýsti þessu frumvarpi sem það væri komið beint frá ráðstjórninni sálugu í Sovétríkjunum. Við stjórnarandstæðingar höfum stundum notað þau orð að margt af verkum ríkisstjórnarinnar mætti nú ráða í með tilliti til þess að í landinu ríkti hálfgerð ráðstjórn. En látum það liggja á milli hluta. En þetta mátti ráða af orðum hv. þm. Péturs H. Blöndals hér áðan.

Það liggur auðvitað fyrir að það eru greinilega deilur milli stjórnarliða í málinu, Sjálfstæðisflokks annars vegar og Framsóknarflokksins, þó ekki liggi alveg ljóst fyrir eftir ræðu hv. þingmanns þegar hann nefndi sjálfan sig og örugglega einn til viðbótar, hversu víðtækur ágreiningurinn er. Það er kannski þess vegna sem hæstv. ráðherra hefur lýst því í viðtölum að hún teldi líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn mundi samþykkja þetta mál að mestu leyti.

Þegar við ræðum byggðamál er afar erfitt að einangra þá umræðu. Byggðamál almennt og atvinnustarfsemi í landinu skiptir auðvitað allar byggðir verulegu máli. Það ætti varla lengur að þurfa vitnanna við í þeim efnum að það er atvinnustigið sem skiptir höfuðmáli um hvort fólk treystir sér til að setjast að á ákveðnum stöðum eða ekki. Fyrst spyr fólk hvort það hafi atvinnu og geti haft nægar tekjur og ef fólk ákveður að setjast að á einhverjum stað er það væntanlega vegna þess að fólk treystir á að hafa atvinnumöguleika. Síðan koma auðvitað fjöldamörg önnur atriði til skoðunar hjá hverri fjölskyldu fyrir sig eins og menntamál, dagheimilismál, menning og afþreying og síðast en ekki síst samgöngur, hvernig þær eru til og frá viðkomandi landsvæði. Allt skiptir þetta geysilega miklu máli þegar við erum að tala um byggðaþróunina í heilu lagi.

Hitt held ég að fari ekkert á milli mála, hæstv. forseti, að að sumu leyti hefur stefna ríkisstjórnarinnar veikt byggðirnar verulega. Ég held að þurfi ekki að nefna nema sjávarútveg í því sambandi og þá óvissu sem fylgt hefur því í sjávarbyggðunum að menn hafa ekki getað vitað til langs tíma eða jafnvel stutts, hvort atvinnurétturinn sem byggir á sjávarfanginu yrði þar til staðar eða ekki. Þegar byggðirnar víða um landsbyggðina hafa veikst og atvinnuástandið og íbúðaverð hefur lækkað, þá kemur auðvitað að því eins og oft er að jafnvel þó að finna megi menn sem vilja fara af stað í atvinnurekstur í viðkomandi byggðarlögum þá eru lánskjörin þannig, eða lánamöguleikarnir að þeir eru oft og tíðum tengdir við eignir manna, menn þurfa oft að veðsetja eignir sínar persónulega til að fá fjármagn til að hefja atvinnustarfsemi. Og þegar munar jafnmiklu og gerir í dag, þ.e. að menn selja t.d. þokkalega gott einbýlishús í Reykjavík á um 50 millj. en kannski allt niður í 5 millj. á ákveðnum stöðum úti á landi, tíu sinnum minna verð, þá liggur það auðvitað í hlutarins eðli að ef menn þurfa að veðsetja eignir sínar til þess fá fé þá er veðhæfni manna afar misjöfn.

Byggðastofnun hefur á undanförnum árum verið lánastofnun landsbyggðarinnar einkum á þeim svæðum sem átt hafa erfiðast uppdráttar. Oft og tíðum hafa lánveitingar Byggðastofnunar orðið til þess að hægt hefur verið að viðhalda atvinnulífi eða snúa vörn í sókn á einstaka stað vegna þess að aðgangur að lánsfé hefur verið til staðar. Hinu er auðvitað ekkert að leyna að Byggðastofnun hefur oft tapað fjármunum út á lánastarfsemi sína. En við skulum heldur ekki gleyma því að í hlutverki stofnunarinnar felst að taka áhættu á að lána inn á atvinnusvæði þar sem þörf er fyrir og vissulega er það svo með Byggðastofnun, eins og er reyndar með Nýsköpunarsjóð einnig. Þar hefur verið tekin áhætta sem hefur ekki alltaf skilað sér. Það á auðvitað við um alla lánastarfsemi, hvort sem við erum að tala um Nýsköpunarsjóð eða Byggðastofnun.

Hæstv. forseti. Ég hef nokkrar efasemdir um þetta frumvarp, ég hefði viljað sjá að menn tækjust á við vanda Byggðastofnunar. Ég veit ekki nákvæmlega hver hann er. En ég heyrði hæstv. ráðherra segja, held ég í andsvari í dag, að það þyrfti einhverja milljarða inn í Byggðastofnun til að efla starfsemi hennar. Gott væri ef hæstv. ráðherra vildi upplýsa nánar í þessari umræðu hversu marga milljarða hér er um að ræða til að ná stöðu Byggðastofnunar í eðlilegt form að því er varðar lánveitingar og styrkveitingar eða aðkomu með hlutafé inn í fyrirtækið til að styrkja atvinnulíf.

Hér er einnig lagt upp, hæstv. forseti, að í stað lána geti komið til lánsloforð frá stofnunum og þá kannski gegn því að lánsábyrgð fáist frá ríkinu, slík ábyrgð verði sem sagt veitt og væntanlega er hún þá veitt vegna þess að áhættan er of mikil að mati þeirra sem sótt er um lán til. Þess vegna þurfi að sækja um ríkisábyrgð.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvernig þessar ríkisábyrgðir verði veittar. Eru það ráðuneytin eða ríkisstjórnin eða hvernig hyggjast menn veita þessa ríkisábyrgð? Við höfum einhvers staðar lög um ríkisábyrgðir ef ég man rétt, frá fyrri tíð og oft hafa verið sett lög um ríkisábyrgð á sérstökum skuldbindingum. Þá er sennilega nærtækast að minnast á undirbúning til álframkvæmda hér á landi og annað slíkt í því sambandi eins og lántökur vegna orkuöflunar.

Ég sé að tími minn flýgur nokkuð hratt áfram, hæstv. forseti, en ég vil víkja hér að 1. og 2. gr. frumvarpsins. Það er auðvitað fróðlegt að lesa greinarnar og einkum það sem sagt er um þær á bls. 17, þar sem segir að hér verði um að ræða sameiningu Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar Íslands og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins í Nýsköpunarsjóð Íslands. Síðan segir, með leyfi forseta:

„Starfssvið þessara þriggja stofnana er hliðstætt og skarast að nokkru leyti, enda er hlutverk þeirra allra að vinna að nýsköpun og atvinnuþróun í þágu bættrar samkeppnisstöðu landsins og bættra lífskjara. Hvatinn að sameiningunni er fyrst og fremst þörf fyrir sterkari rannsókna- og starfseiningar og almennt vaxandi krafa um sveigjanleika og meiri árangur.“

Gott og vel. Þetta eru ágæt orð á blaði. En ég spyr hæstv. ráðherra hvort ekki hefði verið nær að taka Byggðastofnun fyrir sérstaklega, gera starfsumhverfi hennar sveigjanlegra og stefna þar til meiri árangurs heldur en að fara þá leið sem hér er lögð til. Er það svo, hæstv. ráðherra, að menn séu kannski m.a. að fara þessa leið vegna þess að það eigi ekki að leggja mikla fjármuni inn í Nýsköpunarsjóð Íslands heldur eigi að láta þennan samruna stofnunarinnar bera lánastofnunina uppi að einhverju leyti? Samt er það ekki eins og lagt er upp í frumvarpinu vegna þess að í frumvarpinu er talað um að Byggðasjóður muni taka við útlánasafni, hlutafjáreign, handbæru fé og fullnustueignum Byggðastofnunar. Þá muni Byggðasjóður yfirtaka innlend og erlend lán sem stofnunin hefur tekið og útgefin láns- og hlutafjárloforð.

Þetta segir um Byggðasjóðinn sem á að vera starfandi lánastofnun með sérstakri stjórn. Síðan segir um aðrar eignir, með leyfi forseta:

„Að öðru leyti tekur Nýsköpunarmiðstöð Íslands við eignum, réttindum og skyldum Byggðastofnunar.“

Síðan er talað um annan sjóð, þ.e. Tryggingarsjóð útflutnings og í frumvarpinu segir að hann muni halda eignum og skuldbindingum tryggingardeildar útflutnings. Einnig segir að Tækniþróunarsjóður muni halda eignum og skuldbindingum Tækniþróunarsjóðs.

Hér er því í raun verið að tala um að búa til eina stofnun sem heitir Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Við þann samruna verða væntanlega einhverjar breytingar á mannaráðningum og sjálfsagt er það rétt sem hæstv. ráðherra sagði í dag, að forstjórum muni a.m.k. fækka. En það verða þrjár stjórnir yfir þessum sjóðum. Ein stjórn yfir hverjum sjóði.

Mér sýnist að þeir eigi að starfa nokkuð sjálfstætt en samt eiga þeir að taka mið af starfsemi hvers annars hvað varðar lánveitingar og markmið, ef ég hef tekið rétt eftir. Verið er að setja saman og búa til eina stofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, en innan vébanda hennar starfa þrír lánasjóðir.

Síðan segir í athugasemdum um 1. gr., með leyfi forseta:

„Stuðningsþjónusta Impru og þróunarsviðs Byggðastofnunar verður samþætt og við það eflist stuðningurinn við atvinnuþróunarfélög og ráðgjafa.“

Ég spyr hæstv. ráðherra. Hefði ekki nákvæmlega eins verið hægt að ná þessu fram varðandi atvinnuþróunarfélögin og ráðgjafana með því að efla Byggðastofnun og þróunarsvið hennar án þess að þetta rynni saman í eina stofnun? Hefðum við ekki kannski verið að ná sömu eða jafnvel betri markmiðum með að láta aðra starfsemi vera sér og Byggðastofnun sér? Þetta eru þær spurningar sem ég vildi leggja fyrir ráðherrann.

Um 2. gr. er vikið að fjármagni. Þar segir, með leyfi forseta:

„Áfram verður tryggt fjármagn til starfsemi atvinnuþróunarfélaga á landsbyggðinni …“

Ég hef ekki séð að það væri sérstaklega tekið fram að lagt yrði nýtt fé í sjóðinn varðandi byggðalánin, þ.e. Byggðasjóðinn. Ég spyr hæstv. ráðherra, miðað við orð hennar í dag um einhverja milljarða inn í Byggðastofnun. Hvað erum við að tala um inn í þann sjóð svo hann verði starfhæfur með svipuðum styrkleika og aðrir sjóðir, Tryggingarsjóður útflutnings og Tækniþróunarsjóður? Þetta held ég að sé nauðsynlegt að fá upplýst fyrir fram því eins og ég sagði áður hef ég miklar efasemdir um frumvarpið. En það sem lýtur að markmiðum og tæknilegum útfærslum mun væntanlega skýrast betur í störfum iðnaðarnefndar og við munum sjálfsagt hafa betri upplýsingar eftir 1. umr. til að glöggva okkur á málinu svo það er kannski ekki rétt að slá málið af svona í upphafi, og gefa frumvarpinu séns. Auðvitað hljótum við að vilja að hægt sé að ná árangri varðandi byggðamálin. En það vantar mikið á. Eins og ég sagði er ekki til nein tæmandi upptalning á því hvað teljast byggðamál nema ef við segðum í stuttu máli eitthvað á þá leið að fyrir landsbyggðina hljóta byggðamál að vera það að ná svipuðum lífskjörum, svipuðum möguleikum til menningar, afþreyingar, samgangna, menntunar, starfa og fjölbreytileika og fólk býr við á Reykjavíkursvæðinu. Það hlýtur að vera markmið að við reynum að ná því að fólk á landsbyggðinni eigi nokkurn veginn jafna möguleika á við fólk sem býr á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þá er ég að tala um Reykjavíkursvæðið í heilu lagi og jafnvel byggðirnar sem hér eru næst þar sem er orðið innan við klukkutímaferðalag inn á Stór-Reykjavíkursvæðið þar sem menn geta nýtt sér alla þá þjónustu sem þar er til staðar.

Til að landsbyggðin haldi velli þarf að efla þar atvinnulíf, samgöngur, menntun og efla þarf jafnvel stuðning við atvinnulífið. Ef sú leið sem hér er farin getur náð þessum markmiðum ætla ég að lýsa yfir að ég verð ákaflega feginn. En það verður þá að sannfæra þann sem hér stendur um að með frumvarpinu séum við að fara leið sem muni skila okkur einhverjum árangri. Byggðaáætlanir undanfarinna ára hafa ekki skilað okkur neitt áfram. Þar hefur verið mikið af orðum og mikið af yfirlýsingum og mikið af stefnumálum. En það er ekki hægt að segja að okkur hafi miðað áfram hvað fjölmargar byggðir varðar.

Við sjáum það á Austurlandi núna við þær miklu framkvæmdir, að þar er gott atvinnuástand og þangað mun fólk sækja. En það er verra annars staðar á landsbyggðinni, án þess að ég sé að mæla með álverum í hverjum landsfjórðungi.