132. löggjafarþing — 102. fundur,  10. apr. 2006.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins.

730. mál
[21:49]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður er að tala um framtakssjóðina svokölluðu. Nú er ég svolítið illa undirbúin að svara nákvæmlega hvernig fór með þá. En ég man ekki betur en að nú þegar sé búið að innlima þá í Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins þar sem þeir voru í raun kannski ekki alveg að skila því sem ætlast var til. Svo minnir mig líka að hv. þingmaður hafi verið með formlega fyrirspurn til mín um þetta mál þannig að þá koma nákvæmari svör.