Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.
Forseti. Andsvar mitt og spurning er öllu jarðbundnari en fyrri hv. ræðumanns. Spurning mín varðar 6. gr. þar sem tiltekið er að sá atvinnurekstur sem undir þetta fellur losi meira en sem nemur 30 þús. koldíoxíðsígildistonnum á ári. Manni verður á að stöðvast við þessa tölu, 30 þús. tonn. Ég veit svo sem ekki mikið hvernig á henni stendur. Fari maður í athugasemdir við frumvarpsgreinina þá finnur maður enga athugasemd um þessa tölu, sem er þó eitt af meginatriðum frumvarpsins. Hvaða fyrirtæki falla þar undir?
Ég spyr þess vegna ráðherrann, af því að þetta er mjög mikilvægt: Hvernig er þessi tala til komin? Hvaða fyrirtæki eru það í stórum dráttum sem fara yfir 30 þús. koldíoxíðsígildistonn á ári?