Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.
Forseti. Í þingsköpum er kveðið á um að við fyrstu umræðu ræði menn almennt um frumvörp. Það er sjálfsagt að gera það og ekki hægt að ætlast til að ráðherrar, þótt þeir eigi að kunna skil á mörgu, kunni skil á öllu í frumvörpum sínum, vegna þess að við vitum öll hvernig þau eru til komin.
Vissulega er það rétt að hægt er að kanna þetta í nefnd. Hér er hins vegar um að ræða höfuðatriði. Eitt af höfuðatriðum frumvarpsins, þ.e. til hvers það nær. Ef frumvarp er sett fram um refsingar við glæpum er tiltekið hvaða glæpur það er. Sá dómsmálaráðherra sem kæmi með frumvarp um að refsa mönnum fyrir einhvern glæp verður að standa skil á því hvaða glæpur það er o.s.frv. Ég ætlast til að umhverfisráðherra hæstv. geti svarað þessu um 30 þús. tonnin.
Ég spyr af ákveðinni ástæðu. Ég spyr vegna frétta sem mér hafa borist af því að í undirbúningi þessa frumvarps hafi ekki verið talað um 30 þús. tonn heldur um 15 þús. tonn. Ég spyr þess vegna tvöfalt í seinna andsvari mínu: Hvaða fyrirtæki fara yfir 30 þús. tonn og hvaða fyrirtæki eru á milli 15 þús. og 30 þús. tonna sem sett voru út úr frumvarpinu, að því ég hef heyrt, vegna kröfu atvinnurekanda þar um?