Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.
Hæstv. forseti. Ég tel ástæðu til þess að taka þátt í umræðunni. Mér finnst ekki koma fram mikill metnaður í frumvarpi hæstv. umhverfisráðherra í þeim málum sem snúa að umhverfisráðuneytinu og stóriðjunni í landinu. Þó að maður vildi að allar verksmiðjurnar yrðu byggðar sem til stendur að byggja sem menn hafa uppi á borðunum hvað varðar framkvæmdir í stóriðju, þá vantar samt verulega upp á að það sé einhver skynsemi í þeirri stefnu sem uppi er. Leyfisveitandi verður samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum að veita leyfi fyrir öllum verksmiðjunum. Hvergi er neitt handfast fyrir hæstv. umhverfisráðherra eða stjórnvöld yfirleitt að koma í veg fyrir eða stjórna því með einhverjum hætti hvort eða hvenær fyrirtækin verða til. Ég bið menn um að benda mér á ef ég fer rangt með, en ég get ekki séð annað en málin liggi þannig.
Þess vegna finnst mér að það hefði verið lágmark að hæstv. ráðherra hefði komið með lagafrumvarp sem hefði gefið henni möguleika til þess að stoppa á einhverjum stað þegar kæmi að ákvörðunum, vegna þess að það hefur sýnt sig á síðustu vikum og mánuðum að það er mikil alvara í þeim sem eru að hugsa um að byggja upp stóriðju hérna og skuldbindandi ákvarðanir eru bókstaflega á næsta leiti. Þegar þær hafa verið teknar bera íslensk stjórnvöld alla ábyrgð á því að útvega þær losunarheimildir sem fyrirtækin þurfa. Það er líka peningur fólginn í því þó að það sé ekki annað. Þó að maður hafi ekki skoðun á því hvort það ætti að byggja öll þessi fyrirtæki, þá hlýtur það að skipta máli hvort stjórnvöld í landinu eigi að skaffa losunarheimildirnar, en þau þurfa að gera það að óbreyttu.
Ef gerðar verða skuldbindandi ákvarðanir um byggingu þessara álvera þá tel ég að íslensk stjórnvöld sitji uppi með það að þurfa að skaffa þessar heimildir og borga fyrir þær.
Samkvæmt þeim tölum sem við fengum að sjá fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan í svari við fyrirspurn sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir bar fram voru eftir 417 þús. tonn miðað við að af byggingu Fjarðaáls yrði og stækkuninni í Norðuráli sem búið var að ákveða ásamt viðbótinni í járnblendiverksmiðjunni sem komin er fram. Þá eru eftir 417 þús. tonn í losun á CO 2 sem þýddi að einungis eitt verkefni gat bæst við samkvæmt þessu. Nú liggur fyrir að búið er að taka ákvörðun um að ræða við framleiðendurna í Straumsvík um stækkun þar upp á 250 þús. tonn. Ef það verður niðurstaðan er kvótinn búinn samkvæmt því sem gefið er upp í svari hæstv. ráðherra. Í því svari stendur, með leyfi forseta:
„Samkvæmt þessu vantar um 417 þús. tonn upp á að íslenska ákvæðið sé fullnýtt við byrjun skuldbindingartímabilsins. Hugsanlegt er að farið verði í aðrar framkvæmdir sem gætu fallið undir íslenska ákvæðið á skuldbindingartímabilinu, sem mundi þýða meira útstreymi en samkvæmt fyrrgreindum útreikningum.“
Hér segir svo áfram, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef heildarútstreymi frá stóriðju sem fellur undir íslenska ákvæðið yrði meira en sem svarar til þeirra heimilda sem þar er að finna, eða 1.600 þús. tonna CO 2 , yrðu einstök fyrirtæki sem færu fram úr heimildum sínum að kaupa kvóta eða stuðla að bindingu kolefnis sem svaraði umframlosun fyrirtækisins.“
Nú vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvar er hægt að finna því stað að þessi fyrirtæki þurfi að skaffa þennan kvóta eins og stendur í þessu svari? Ég get hvergi fundið því stað. Það yrði þá að gera sérstakt samkomulag við þessi fyrirtæki um að þau yrðu að skaffa losunarheimildir eða koma með mótvægisaðgerðir. Ég hef ekki heyrt um að slíkt samkomulag hafi verið gert eða að til standi að gera það.
Ég spyr einfaldlega: Er þetta ekki rangt sem kom fram í svari hæstv. umhverfisráðherra? Í lögum eða reglum sem gilda um uppbyggingu þessara fyrirtækja er hvergi gert ráð fyrir að þau flytji inn losunarheimildir eða þurfi yfirleitt að gera það. Á meðan ekki hafa verið settar reglur um úthlutun losunarheimilda og þeim reglum framfylgt geta fyrirtæki hafið starfsemi hér á landi án þess að verða sér úti um losunarheimildir. Þannig hafa stjórnvöld gengið frá málum, því að yfirlýsingin sem ríkisstjórnin lét fylgja Kyoto-bókuninni þegar hún var staðfest á Alþingi fjallaði um að íslensk stjórnvöld ætluðu ekki að notfæra sér sveigjanleikaákvæðin sem hægt var að grípa til gagnvart Kyoto-bókuninni. Ég álít að nú séum við þar stödd í þessu máli að aðgerða sé þörf strax.
Í dag voru að koma nýjar fréttir af Húsavíkurálverinu í viðtali við forstjórann í því fyrirtæki sem ætlar að reisa það álver. Hvað sagði hann? Hann sagði að þeir vildu gjarnan flýta framkvæmdum þar þannig að þær gætu hafist í beinu framhaldi af framkvæmdunum fyrir austan. Þær gætu því hafist eftir tvö ár við Húsavík. Væntanlega er það hugmyndin. Það væri mjög mikilvægt fyrir þá að geta haldið áfram þessum framkvæmdum og hagkvæmt fyrir þá, sagði hann. Það er á sama hátt hagkvæmt fyrir þá eins og Norðurál sem nú hefur flýtt þeirri framkvæmd að stækka verksmiðjuna í Hvalfirði af því að það er hagkvæmt að láta framkvæmdirnar haldast í hendur, að ekki verði stopp eða uppihald í þeim heldur verði sá áfangi kláraður. Það eru þeir að gera núna í Hvalfirði og það er nákvæmlega það sama og þeir segja núna fyrir austan, að skynsamlegt sé að hefja framkvæmdir við Húsavík.
Við höfum séð yfirlýsingarnar um Helguvík og áhuga Norðurálsmanna á þeim framkvæmdum, yfirlýsingar forstjóra Orkuveitunnar um að áhugi sé fyrir því að uppfylla þarfirnar í sambandi við raforkuframleiðslu handa þeim o.s.frv. Það á að taka þetta allt alvarlega. Mér finnst a.m.k. ástæða til að gera kröfu til þess að það sé þó það blóð í ríkisstjórninni að hún sitji ekki uppi með að borga fyrir losunarheimildirnar handa þessum álverum. En það er auðvitað ekki nóg, það þurfa líka að vera þau bein í ríkisstjórninni að hún komi fram með viðunandi vopn í höndunum til að hafa einhverja stjórn á því hvenær af þessum framkvæmdum verður. Eins og málin standa núna virðist ekki einu sinni vera áhugi fyrir hendi hjá hæstv. ríkisstjórn að gera það. Þetta er auðvitað hægt að gera með lagasetningu og það þarf ekkert mjög flókna lagasetningu til. Ef hæstv. ráðherra hefði t.d. þá skoðun að vissara væri að hafa málin með þeim hætti að unnt væri að skrifa undir íslenska ákvæðið óbreytt, þá væri hægt að setja mjög einföld lög sem gæfu ráðherranum möguleika á að stöðva framkvæmdir sem færu fram úr íslenska ákvæðinu. Þetta væri mjög einfalt ef menn vildu gera það. Til huggunar þeim sem hafa áhyggjur af því að ekki sé nóg um að vera á Íslandi, þá er rétt að menn átti sig á að það eru ekki nema sex ár þangað til þetta tímabil rennur út. Það er verið að byggja álver fyrir austan og ef af samningum verður í Straumsvík verður hafist handa þar fljótlega. Það verður nóg um að vera fram að þeim tíma, það er ekki lengra en sex ár þangað til þetta er búið.
Ráðherrar í íslensku ríkisstjórninni virðast hafa komist að þeirri niðurstöðu að það þyrfti að láta þetta allt fljúga áfram og hafi fundið upp þá aðferð að reikna eigi þetta út með því að nota meðaltalsútreikning. Samkvæmt þeirri þýðingu sem ég hef fyrir framan mig á íslenska ákvæðinu er hægt að skilja orðalagið á tvo vegu. Það má skilja íslenska orðalagið þannig að um sé að ræða meðaltal innan hvers árs og eins að um sé að ræða meðaltal áranna sem um ræðir. Því miður er ákvæðið svona úr gerði gert og íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að túlka ætti það svona. Mér þætti gott ef hæstv. ráðherra staðfesti hér að aðrir aðilar, þ.e. samningsaðilar okkar, hafi staðfest sama skilning og að það sé ekki bara á Íslandi sem menn fóru að lesa ákvæðið með þessum gleraugum í haust, að sami skilningur hafi verið á því annars staðar að lesa ætti það svona þannig að ekki komi upp einhver misskilningur hvað þetta varðar.
Reyndar er mjög furðulegt ef menn hafa litið svo á að þetta ætti að vera meðaltalsákvæði því þá hafa menn ekki legið mikið yfir því hvað þeir voru að gera í samningsferlinu, einfaldlega vegna þess að verið var að tala um nýjar framkvæmdir. Kyoto-ferlið er allt hugsað í áföngum. Það er hugsað þannig að menn nái árangri og nái meiri árangri eftir því sem lengra líður. Hvernig á manni að detta í hug að mönnum hafi dottið sú snilldarhugmynd í hug í þessum samningum að gera ætti ráð fyrir vaxandi framleiðslu yfir tímabilið sem um var samið og að niðurstaðan yrði sú að framleiðslan væri komin langt yfir það meðaltal sem hafa mætti í samningnum þegar kæmi að lokum hans og því væri ekki hægt að skrifa undir sams konar samning eftir að tímabilinu lyki eins og um var rætt? Það er verið að segja okkur það hér.
Mér finnst ótrúlegt að það sé niðurstaðan að menn hafi samið á þennan hátt. Ég geri ráð fyrir að þegar verið var að semja um þessa hluti hafi menn horft á þetta sem ferli til lengri tíma. Hverjum dettur þá í hug að hafa þessa aðferð við samninginn? Íslensk stjórnvöld hefðu átt að gera ráð fyrir að geta þurft að skrifa undir þennan samning óbreyttan eftir 2012. Þó svo að þau hafi haft það í huga að reyna að berjast fyrir því að fá útvíkkun á ákvæðinu þá liggur ekkert fyrir um það í dag að slíkt náist. Það er ömurlegt fyrir Íslendinga að taka þátt í alþjóðasamstarfi eins og þessu með því að mæta til leiks og þurfa að byrja á að viðurkenna að þeir geti ekki skrifað undir íslenska ákvæðið óbreytt, og ríflegt var það þó.
Ég taldi ástæðu til að koma upp og tala um þetta vegna þess að mér finnst íslensk stjórnvöld hafa gengið allt of langt, einfaldlega vegna þess að við erum ekki í neinum vanda. Það eru sex ár þangað til þetta tímabil er liðið. Menn eru með fangið fullt í stækkun stóriðjuvera og það er nógur tími til að ráðstafa því sem hugsanlega kæmi út úr samningaviðræðum þegar þar að kemur.
Það er eiginlega óskiljanlegt hvernig ríkisstjórnin hefur staðið að þessu máli. Það er engin stefna uppi sem hægt hefur verið að merkja í gegnum tíðina heldur er einhvern veginn látið reka á reiðanum og menn eru að geta sér til um hvað verið sé að hugsa á stjórnarheimilinu. Menn hafa verið að ráða í það. Í vetur komu allt í einu upplýsingar frá ríkisstjórninni um það hvernig reikna ætti þetta út, þ.e. þessi meðaltalsútreikningur. Núna stendur málið þannig að það koma nýjar fréttir nánast í hverjum mánuði um nýjar og stórar fyrirætlanir, ekki nánast heldur í hverjum mánuði. Ekki eru nema fáeinir dagar síðan tekin var ákvörðun um að flýta stækkuninni í Hvalfirði. Í dag kom tilkynningin um áhuga þeirra fyrir austan á því að hefjast handa sem allra fyrst við Húsavík.
Ég held að það sé kominn tími til að hæstv. umhverfisráðherra taki á sig rögg í þessu máli og sjái til þess að ríkisstjórnin móti einhverja stefnu sem hún þorir að segja frá hver sé og að sú stefna verði þannig að Íslendingar geti talað sæmilega uppréttir fyrir henni á alþjóðavettvangi.