Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.
Frú forseti. Þetta minnti mig á það þegar ég var nýtekin við sem umhverfisráðherra og fór í viðtal og yfirskriftin á viðtalinu varð þessi: Umhverfisráðherra sér tækifæri í loftslagsbreytingum. Nú skal ég skýra þetta svolítið.
Ég tel að þeir tímar sem við lifum núna, við erum að berjast á móti losun gróðurhúsalofttegunda, geti haft í sér fólgin ýmis tækifæri, t.d. í að sækja fram í að þróa tækni sem gerir okkur kleift að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ég var t.d. í Montreal nú í desember á fundi umhverfisráðherra á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þar var einn þekktasti sjónvarpsmaður Kanada og gerði þetta sérstaklega að umtalsefni. (Forseti hringir.)