Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.
Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra talaði um að raunveruleikinn væri annar en verið væri að gefa hér til kynna. Það væri greinilega nógur tími til stefnu. Það mundi ekki verða af öllum þessum áformum. Við hefðum ekki raforku, við hefðum ekki umhverfið, við hefðum ekki efnahagslega stöðu til þess.
En hvaða tæki hefur hæstv. ráðherra til þess að koma í veg fyrir það? Hæstv. ráðherra hefur ekki lagt fram hér tillögur sem geta uppfyllt þá möguleika að það sé hægt að stöðva fyrirtæki af t.d. vegna útblástursins. Hæstv. ráðherra verður innan ríkisstjórnarinnar að skaffa fyrirtækjunum þær útblástursheimildir sem þarf að óbreyttum lögum og reglum ef þau kjósa að koma þessari starfsemi upp hérna. Það getur komið að því hvenær sem er. Það er alveg hægt að taka (Forseti hringir.) mark á því þegar nýjar fréttir berast af nýjum fyrirætlunum.