132. löggjafarþing — 102. fundur,  11. apr. 2006.

Landhelgisgæsla Íslands.

694. mál
[02:13]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Ég vil þakka þessar góðu og málefnalegu umræður um frumvarpið. En mér þykir leiðinlegt að koma hv. þm. Jóni Bjarnasyni í uppnám með því að tala um ákveðið frelsi og losna undan oki ríkisins, láta það ekki ráða öllu en (Gripið fram í.) við verðum að búa við það í öllum málum að menn hafi mismunandi skoðanir.

Varðandi það sem hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson vék að og var lykilatriði í spurningum hans var spurningin um hvort í frumvarpinu væri verið að mæla fyrir um að Landhelgisgæslan gæti tekið að sér hernaðarlegt hlutverk. Hvergi í frumvarpinu er vikið að því að Landhelgisgæslan taki að sér hernaðarlegt hlutverk. Það er talað um öryggisgæslu og björgun á hafi úti og í 1. tölul. 4. gr. segir, með leyfi forseta:

„Öryggisgæsla á hafinu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands, samninga við önnur ríki og ákvæði laga.“

Tækjakostur Landhelgisgæslunnar er ekki þannig að hann sé til þess fallinn að Landhelgisgæslan taki að sér hernaðarleg verkefni og ekki er verið að hanna nýtt varðskip eftir þeim kröfum sem menn gera til t.d. herskipa. Litið er á tæki Landhelgisgæslunnar sem leitar- og björgunartæki og varðskipin sem varðskip en ekki sem herskip. Það er lykilatriði þegar menn velta fyrir sér hlutverki Gæslunnar, að hafa þetta í huga þegar rætt er um hana, að tæki sem hún notar eru þess eðlis að hún getur ekki tekið að sér hernaðarleg verkefni og getur ekki starfað sem sjóher.

Hins vegar er innan Gæslunnar sérþekking t.d. varðandi sprengjueyðingu sem hefur nýst í samvinnu við heri í nágrannalöndunum og hér hafa verið æfingar á vegum NATO sem sprengjueyðingardeildin hefur staðið fyrir og mun áreiðanlega þróast áfram.

Eins og hv. þingmaður las upp úr greinargerð frá 1999 gerðu menn ráð fyrir að undir merkjum sem var kallað samstarf í þágu friðar eða félagsskapur í þágu friðar sem var komið á laggirnar af Atlantshafsbandalaginu til að auðvelda ríkjum sem nú eru orðin aðildarríki Atlantshafsbandalagsins að laga sig að breyttum kröfum, þá var gert ráð fyrir að Landhelgisgæslan gæti þátt í því. Það hefur breyst og ég held að það sé ekki verkefni sem lengur er rætt um.

Einnig hefur áherslan á tundurduflaslæðingar minnkað frá því sem áður var en þar var gert ráð fyrir, og í áætlunum NATO er að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að þau skip og sá tækjakostur sem hér er nýtist þótt hann sé ekki hernaðarlegs eðlis. Við vorum reiðubúnir til þess að láta þyrlusveit okkar sinna verkefnum með orrustuþotum Bandaríkjahers, eins og tilboð íslensku ríkisstjórnarinnar var í febrúar, því samstarf sveita eins og lögreglu og Landhelgisgæslu við þá sem sinna öryggisgæslu undir merkjum sjóhers kemur að sjálfsögðu til álita. En tækjakostur Landhelgisgæslunnar er ekki þannig úr garði gerður að hann geti sinnt hernaðarlegum verkefnum.

Ég held að með þessu svari ég mörgum af þeim spurningum sem komu fram frá hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni. Um samstarf við aðrar þjóðir þá stendur til að gera samninga t.d. við Dani um samstarf milli Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins þá er það skilgreint verkefni Landhelgisgæslunnar sem landhelgisgæslu en ekki sem sjóhers og það lýtur að ýmsum verkefnum svo sem eftirliti með skipum og slíku sem falla vel að verkefnum Landhelgisgæslunnar fyrir utan leit og björgun.

Ég sat í nefndinni sem samdi þessa skýrslu sem út kom 1993 og hér er vitnað til. Þar er einmitt tekið fram að áfram eigi að fylgja þeirri stefnu að íslenskir aðilar taki að sér þá þætti í störfum varnarliðsins sem ekki krefjast annarra skuldbindinga en sem samræmast borgaralegum störfum. Þetta er alveg lykilatriði í öllu því sem íslensk stjórnvöld hafa sagt um þessi mál því það hefur ekki verið samþykkt á Alþingi að íslensk stjórnvöld geti tekið þátt í hernaðarlegum störfum eða hafi heimildir til þess að gera slíkt þannig að allt það sem við erum að tala um er þess eðlis að um borgaralega starfsemi er að ræða. Það á líka við um 8. gr. varðandi vopnin sem hv. þingmaður spurði um, það er eins og hérna segir, með leyfi forseta:

„Til þessa hafa starfsmenn Gæslunnar farið eftir reglum um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna í þau fáu skipti sem þeir hafa þurft að nota vopn við störf sín. Aðstæður starfsmanna Landhelgisgæslunnar eru hins vegar nokkuð frábrugðnar því sem gerist í landi og því er talið nauðsynlegt að kveða skýrt á um vopnaburð starfsmanna Landhelgisgæslunnar og heimild þeirra til notkunar vopna.“

Það er til þess að lagaheimildir fyrir þessu séu alveg skýrar en ekki sé verið að tala um að vopnaburður sé á annan veg en löggæsluaðilar hafa heimild til í löggjöf okkar.

Sama gildir um 5. gr. 2. mgr. Ég veit ekki hvort við höfum haft hugmyndaflug til að gera upptalninguna í greinargerðinni tæmandi en ef gert væri ráð fyrir að í þessu fælist einhvers konar hernaðarleg starfsemi þá hefði það náttúrlega verið tekið fram í greinargerðinni. En menn verða að huga að því að frumvarpið er ekki þannig úr garði gert að við séum að velta því fyrir okkur.

Í 25. gr. er hlutafélagsvæðingin sem menn eru að tala um. Það er mín skoðun og ég veit að menn geta verið ósammála því og verða uppnæmir yfir því en ég tel að þegar verið er að endurskoða löggjöf um stofnanir eins og Landhelgisgæsluna þá eigi að hafa slíkar heimildir í frumvarpi. Þegar ég var menntamálaráðherra og flutti frumvarp um háskóla þá var sams konar ákvæði líka sett í frumvarpið um háskóla sem hefur komið háskólanum vel með því að geta tekið þátt í starfsemi og haft aukið svigrúm. Og þótt háskólanum sé ekki breytt í hlutafélag þá hefur Háskóli Íslands geta tekið þátt í hlutafélögum og átt aðild að samstarfi við aðra á grundvelli ákvæða eins og þessa. Ég sé það fyrir mér að Landhelgisgæslan geti t.d. átt samstarf við aðra aðila á þessum grunni. Ég hef ekki hugsað það til hlítar. Varðandi réttindi starfsmanna þá færi það eftir því sem ákveðið yrði ef farið yrði út í þetta á annað borð.

Ég hef ekki svör við því hvort Landhelgisgæslan muni flytja sig um set. Það eru uppi áform sem ég hef andmælt um að reisa Háskólann í Reykjavík á svæðinu milli Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar, við Reykjavíkurflugvöll, og ef menn líta á þær skipulagshugmyndir og ef af þeim áformum verður, þá er gert ráð fyrir því að eitt hornið á því landi fari beinlínis inn í flugskýli Landhelgisgæslunnar þannig að það virðist frekar vera gert ráð fyrir háskólanum en Landhelgisgæslunni á athafnasvæði Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Þá liggur í hlutarins eðli að við getum ekki rekið flugstarfsemi Gæslunnar þaðan, þetta er atriði sem við verðum að skoða.

Varðandi kostnaðinn þá er það svo að með nýrri flugvél, nýju varðskipi og fjölgun þyrlna munu öll umsvif Landhelgisgæslunnar stóraukast og kostnaður við rekstur hennar mun náttúrlega vaxa. Þetta er eitt af því sem ég held að samstaða sé um á þingi og í ríkisstjórninni að menn vilji taka þetta að sér og eigi að axla þessa ábyrgð. Það er unnið hörðum höndum að því að undirbúa þetta og þá mun starfsmönnum einnig fjölga, ekki síst flugmönnum og tækniliði sem sinnir flugvélum við þessar breytingar.

Hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson spurði um þyrlurnar. Hugmyndir okkar eru þær að hægt sé að halda úti fullkominni leitar- og björgunarþjónustu með þremur þyrlum af Super Puma gerð eða sambærilegum þyrlum. Ef það verði þá sé unnt að sinna þessu á viðunandi hátt.

Ég tel líka æskilegt að huga að því hvort ekki eigi að hafa minni þyrlu, hafa fjórar þyrlur, þessar þrjár stóru og eina minni sem væri þá til slíkra verkefna. Það væru þrjár þyrlur af sambærilegri gerð og Super Puman sem við erum með núna, búnar afísingarbúnaði og öllum þeim búnaði sem þarf og þá væri þannig um hnúta búið að unnt væri að veita 24 tíma þjónustu sjö daga vikunnar allan ársins hring. Það verður aldrei hægt að fylla það skarð sem verður við að eldsneytisvél verður ekki hér í landi, það er engin þjóð í heimi önnur en Bandaríkjamenn sem halda úti björgunarsveitum og nota eldsneytisvélar. Við yrðum að hafa búnað um borð í varðskipum okkar til þess að þyrlurnar gætu tekið eldsneyti á lofti og það mundi stórauka radíus þeirra og athafnasvæði.

Ég tek undir með hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni þegar hann ræðir um olíu- og gasflutningana. Þeir flutningar eiga eftir að setja mikinn svip á alla skipaumferð umhverfis Ísland og við erum rétt að finna smjörþefinn af þessu. Ég hef í undirbúningi að efna til ráðstefnu næsta haust með hagsmuni Gæslunnar og okkar í huga varðandi þennan þátt til að menn geri sér gleggri grein fyrir því hvað í þessu felst og hef hafið undirbúning að því. Nýja varðskipið sem verið er að hanna á að hafa dráttarkraft til að geta glímt við þessi risaskip og við höfum tekið m.a. mið af því sem Norðmenn hafa verið að gera. Ég tel að samvinna okkar við Norðmenn í þessu efni eigi eftir að aukast. Þeir eru að endurnýja allan skipaflota sinn í raun og veru, bæði strandgæsluna og herskipaflota þannig að Norðmenn munu vera enn mikilvægari samstarfsaðili okkar á Norður-Atlantshafinu þegar fram líða stundir en nú er vegna þess hve mikla áherslu þeir leggja á endurnýjun á flotastyrk sínum. En þetta mun skýrast varðandi þyrlurnar. Það var sett af stað vinna til að undirbúa ráðstafanir í þeim efnum, þrjár vikur eru ætlaðar til undirbúnings bráðabirgðaráðstafana í þyrlumálunum, tveir mánuðir til að undirbúa langtímaáætlanir og ég á von á því að núna um páskana komi tillögur um hvernig við getum leyst þetta til bráðabirgða og síðan til langframa. Mér virðist ljóst af þeim upplýsingum sem ég hef fengið nú að þrjár stórar þyrlur dugi til að við getum talað um þetta af því öryggi sem við viljum að ríki hér á þessu sviði.