132. löggjafarþing — 102. fundur,  11. apr. 2006.

Framhald þingfundar.

[02:28]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég er tilbúinn að vera hér og ræða þessi mál eins lengi og forseti ákveður en til að greiða fyrir störfum þessa fundar þá mundi ég mælast til þess við forseta að ég fengi að mæla fyrir tveimur litlum frumvörpum í viðbót, þ.e. frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fullnustu refsidóma sem kveðnir hafa verið upp í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð og hins vegar frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Happdrætti Háskóla Íslands. Þetta eru tvö lítil frumvörp sem ég held að menn ættu að geta sameinast um að við gætum klárað.